Collector
Úkraínumenn og Rússar samþykkja þriggja daga vopnahlé | Collector
Úkraínumenn og Rússar samþykkja þriggja daga vopnahlé
Fréttastofa RÚV

Úkraínumenn og Rússar samþykkja þriggja daga vopnahlé

Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafa báðir samþykkt þriggja daga vopnahlé og skipti á stríðsföngum. Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um vopnahléið á Truth Social fyrr í kvöld og sagði að hann hefði lagt það til. Vopnahléið gildir 9., 10. og 11. maí. Þá er ráðgert að Rússar og Úkraínumenn skiptist á 1000 stríðsföngum frá hvoru landi. Áður hafði Pútín lýst yfir einhliða vopnahléi 8. og 9. maí – og Zelensky lýsti sömuleiðis yfir einhliða vopnahléi í 6. maí. Í dag verða mikil hátíðarhöld í Moskvu þegar sigri á nasistum í seinni heimsstyrjöld er fagnað. Hátíðarhöldin eru þó lágstemmdari í ár en áður og engin hernaðarleg farartæki eða hergögn verða til sýnis í ár. Sýningin í fyrra var mun umfangsmeiri og um 30 erlendir þjóðarleiðtogar mættu sem gestir. Í ár er búist við aðeins þremur þjóðarleiðtogum, frá Belarús, Laos og Malasíu.

Go to News Site