Collector
Stjórnvöld í Mexíkó íhuga styttingu skólaársins vegna HM í fótbolta | Collector
Stjórnvöld í Mexíkó íhuga styttingu skólaársins vegna HM í fótbolta
Fréttastofa RÚV

Stjórnvöld í Mexíkó íhuga styttingu skólaársins vegna HM í fótbolta

Stjórnvöld í Mexíkó íhuga að stytta skólaárið um rúman mánuð vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta sem haldið verður þar að hluta til í sumar. Fyrstu leikir fara fram í Mexíkóborg 11. júní. Menntamálaráðherrann Mario Delgado greindi frá þessu á X á fimmtudag. Hann sagði að ákvörðunin væri einnig vegna mikilla sumarhita sem nú þegar er farinn að hafa áhrif á skólahald í fleiri ríkjum. Því hafi verið ákveðið að kennslu ljúki 5. júní. Hann sagði að stjórnvöld væru þó að íhuga að byrja næsta skólaár fyrr. Reuters fréttaveitan segir að þessi ákvörðun hafi verið harðlega gagnrýnd af samtökum foreldra og kennarasambandinu. Kennarasambandið segir í yfirlýsingu að það sé óásættanlegt að nota HM í fótbolta sem ástæðu til að stytta skólaárið. Menntun barna eigi ekki að fórna fyrir íþróttaviðburð sem fari fram í aðeins þremur af 2.500 sveitarfélögum í landinu. Þá sé það ekkert nýtt að veðurfar sé heitt í landinu. Hefur áhrif á 23,4 milljónir barna Forseti Mexíkó, Claudia Sheinbaum, virtist draga aðeins í land með þessa ákvörðun stjórnvalda á blaðamannafundi í gær. Hún sagði að það væri ekki búið að festa neinar dagsetningar og þetta væri einungis tillaga. Ef af verður mun ákvörðunin ekki aðeins hafa áhrif á menntun barna. Margir foreldrar þurfa að gera ráðstafanir og fá gæslu fyrir börn sín í rúman mánuð til viðbótar við sumarfrí skólanna, sem annars eiga að hefjast 15. júlí. Mexíkósk hugveita um opinbera stefnumótum segir að ákvörðunin hafi áhrif á 23,4 milljónir barna. Yfirvöld í Jalisco-ríki í Vestur-Mexíkó, sem lýtur stjórn andstæðinga Sheinbaum, hafa sagt að þau ætli ekki að virða þessa ákvörðun stjórnvalda. Kennsla verður því áfram í skólum þar til loka júnímánaðar. Kennsla verði einungis felld niður í fjóra daga þegar fótboltaleikir fara fram í borginni Guadalajara.

Go to News Site