Collector
Ungur Svíi tengdur 764-hópnum ákærður fyrir fjölda alvarlegra ofbeldisglæpa | Collector
Ungur Svíi tengdur 764-hópnum ákærður fyrir fjölda alvarlegra ofbeldisglæpa
Fréttastofa RÚV

Ungur Svíi tengdur 764-hópnum ákærður fyrir fjölda alvarlegra ofbeldisglæpa

Ungur sænskur maður frá Umeå hefur verið ákærður fyrir fjölda alvarlegra brota. Brotin ná meðal annars til manndrápstilrauna og hvatningar til sjálfsvígs, en ungi maðurinn tengist 764-hópnum svokallaða. Hinn ákærði er aðeins 18 ára að aldri. Sænska ríkisútvarpið greinir frá. 764-hópurinn herjar einkum á börn og ungmenni, fær þau á sitt vald og kúgar þau til ofbeldisverka. Hann teygir anga sína víða og til að mynda hingað til Íslands. Íslensk stúlka sem varð fyrir barðinu á 764-hópnum sagði frá reynslu sinni í Kastljósi í fyrra. Hópurinn er hluti af stærra neti sem kallað er The Community eða Samfélagið, sem hefur verið stytt sem The Com. Samfélagið kemur að ofbeldisglæpum og framleiðslu á ólöglegu efni sem er síðan dreift í lokuðum hópum. Fjöldi alvarlegra brota yfir tveggja ára tímabil Ungi maðurinn var handtekinn af lögreglu í Svíþjóð í apríl á síðasta ári í kennslustofu í skóla í Umeå. Hann er ákærður í 77 liðum, þar á meðal fyrir þrjár tilraunir til manndráps, hvatningu til sjálfsvígs, nauðgun, alvarlegt barnaníð, alvarlegt dýraníð og alvarlegt barnaklámsbrot. Þá er einnig meðal brota hans að hafa staðið að ólöglegum ofbeldissýningum. Brotin eru talin hafa átt sér stað frá 2023 til 2024. Maðurinn er sem dæmi grunaður um að hafa fyrirskipað 15 ára dreng að gera hnífaárás í Hässelby árið 2024, að hafa fengið stúlku í Ástralíu til að skaða sig og senda kynferðislegt myndefni af sér. Hann hafi síðan hvatt hana til að fyrirfara sér. Þá er hann einnig grunaður um að hafa fengið þýskan mann til að meiða sjálfan sig svo alvarlega að hann lét næstum lífið. Talinn hátt settur í The Com Aðeins 15 ára gamall var maðurinn þegar genginn í 764-hópinn, undir dulnefninu „Chai“. Hann hefur verið dæmdur fyrir að hafa reynt að sannfæra 13 ára dreng um að fyrirvara sér í beinu streymi á netinu. „Sakborningurinn er hátt settur innan The Com,“ segir Jenny Östling, aðstoðarsaksóknari í Svíþjóð sem fer fyrir rannsókn málsins. „Gerendurnir leita oft að fórnarlömbum sem eru viðkvæm og auðvelt er að stjórna á vefsvæðum þar sem börn og unglingar eru oft á ferð. Þetta geta verið hópar þar sem fólk ræðir sjálfsskaða, sjálfsvíg og geðheilsu en líka vinsælir tölvuleikjavettvangar eins og Roblox.“

Go to News Site