Collector
Handtekinn með eggvopn í Eyjum | Collector
Handtekinn með eggvopn í Eyjum
Fréttastofa RÚV

Handtekinn með eggvopn í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra í aðgerð í gærkvöldi. Stefán Jónsson yfirlögregluþjónn í Eyjum segir að lögreglu hafi borist tilkynning um aðila í hættulegu ástandi. Var því óskað eftir aðstoð sérsveitar sem kom frá Reykjavík. Einstaklingurinn var handtekinn með eggvopn í fórum sínum. Stefán segir málið stutt á veg komið og að atvikið verði skoðað.

Go to News Site