Vísir
Hér fer fram bein textalýsing frá leik Sunderland og Manchester United í 36.umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Flautað verður til leiks á Leikvangi Ljóssins klukkan tvö. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 2. Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United er einni stoðsendingu frá því að jafna met Thierry Henry og Kevin De Bruyne er snýr að flestum stoðsendingum á einu og sama tímabilinu. Fernandes er kominn með nítján stoðsendingar til þessa.
Go to News Site