Fréttastofa RÚV
Liverpool og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og lauk þar með taphrinu Chelsea sem hafði tapað sex deildarleikjum í röð. Ryan Gravenberch kom Liverpool yfir á 6. mínútu en Enzo Fernandez jafnaði fyrir Chelsea á 35. mínútu. Úr leik Liverpool og Chelsea í dag.EPA / ASH ALLEN Liverpool er í 4. sæti með 59 stig og hefði með sigri geta gulltryggt meistaradeildarsæti en það er þó innan seilingar. Chelsea er í 9. sæti, níu stigum frá öruggu meistaradeildarsæti þegar liðið á eftir tvo leiki í deildinni. Aðrir leikir Sunderland - Man United (14:00) Brighton - Wolves (14:00) Fulham - Bournemouth (14:00) Man City - Brentford (16:30) Staðan í deildinni
Go to News Site