Fréttastofa RÚV
Þingmenn á ungverska þinginu hafa formlega kosið Peter Magyar forsætisráðherra Ungverjalands. Magyar var settur í embætti á ungverska þinginu fyrir skömmu. Hann tekur við völdum af Viktori Orbán sem hefur verið við völd í 16 ár. Magyar var vel fagnað þegar hann kom í ungverska þingið í morgun. Nokkur fjöldi safnaðist saman fyrir utan þinghúsið og fylgdist með Magyar og þingmönnum Tisza-flokksins ganga inn í þingið. Flokkurinn fékk fleiri atkvæði og þingsæti en nokkur annar flokkur í sögu Ungverjalands eftir fall kommúnismans. Magyar ætlar að ávarpa stuðningsmenn fyrir utan þingið þar sem búist er við að tugir þúsunda fagni tímamótunum. Þar með er sextán ára valdatíð Viktors Orbáns lokið. Hann hefur sagt að hann ætli ekki að taka sæti á þinginu og þess í stað ætli hann að einbeita sér að endurskipulagninu flokks síns, Fidesz, á landsvísu. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1990 sem Orbán situr ekki á þingi. Agnes Forsthoffer, nýr þingforseti, var líka formlega kosin í embættið í dag. Hennar fyrsta verk var að ákveða að fáni Evrópusambandsins yrði aftur dreginn að húni við þingið. „Eftir tólf ára fjarveru verður fána Evrópusambandsins aftur flaggað á ungverska þinghúsinu.“
Go to News Site