Collector
Núgildandi brottvísunarúrræði harðari | Collector
Núgildandi brottvísunarúrræði harðari
Fréttastofa RÚV

Núgildandi brottvísunarúrræði harðari

„Í draumaheimi gætum við tekið vel á móti öllum sem hingað kæmu, tekið vel utan um þau og veitt þjónustu sem er. En við búum kannski ekki svo vel og erum þar af leiðandi í þessari stöðu.“ Þetta sagði Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, í Vikulokunum fyrir hádegi. Meirihluti nefndarinnar hefur lagt til breytingartillögu við frumvarp dómsmálaráðherra um brottvísunarbúðir þess efnis að börn verði í aðstöðu fyrir fjölskyldur annars staðar. Hljóti frumvarpið samþykki verður lögreglu heimilt að frelsissvipta fólk sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi og vista í þar til gerðum búðum. Fólk þegar lokað inni Víðir bendir á að þegar vægari úrræði hafa verið fullnýtt sé fólk í dag vistað í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði þangað til því er vísað úr landi. Þetta fólk hafi sér ekkert til saka unnið. Íbúðir fyrir fjölskyldur séu skárra úrræði, þrátt fyrir að fólk verði frelsissvipt þar. Reynt sé að finna bestu leiðina til að mæta fólki eins vel og hægt sé. Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, segir mikilvægt að átta sig á því hvernig staðið sé að málum núna. „Við erum að loka fólk inni,“ segir hún og bætir við að það eigi einnig við um börn. Því væri ef til vill ákjósanlegra að hafa þar til gert úrræði fyrir fjölskyldur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi ráðherra, tók í svipaðan streng. „Við erum að vista og hýsa fólk í úrræðum sem eru í raun harðari heldur en þetta og dýrari. Í úrræðum sem eru nú þegar full og fólk er á biðlista til að geta afplánað. Það fyrirkomulag gengur ekki og hefur ekki gengið mjög lengi.“ Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir aðstöðu fyrir fjölskyldur sem kveðið er á um í breytingartillögu við frumvarp dómsmálaráðherra skárri en úrræðið sem nýtt er í dag.

Go to News Site