Fréttastofa RÚV
Í dag er mikið um að vera í Laugardalshöllinni þar sem ungir og efnilegir söngvarar og hljómsveitir stíga á svið og keppa í Söngkeppni Samfés 2026. Þátttakendur eru á aldrinum 13 til 16 ára og koma frá öllum landshlutum. Á undanförnum vikum hafa farið fram forkeppnir en nú hafa 25 atriði verið valin til að taka þátt í úrslitum fyrir hönd þeirra félagsmiðstöðva. Kynnar keppninnar eru þau Hildur Kaldalóns Björnsdóttir, leikkona og Hafsteinn Níelsson, leikskáld. En þau munu sjá um að halda uppi góðri stemningu frá upphafi til enda. Dómnefnd skipa þau Birgir Steinn Stefánsson, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson.
Go to News Site