Fréttastofa RÚV
Ársþing Handknattleikssambands Íslands fór fram í gær. Nokkrar breytingar voru samþykktar, til að mynda um fjölgun liða í efstu deild kvenna. Þingið samþykkti tillögu þess efnis að liðum í efstu deild kvenna yrði fjölgað úr átta í tíu. Breytingin tekur gildi strax á næsta tímabili og Grótta og Víkingur fá þá keppnisrétt í efstu deild til viðbótar við þau lið sem höfðu tryggt sér sæti þar. Úrslitakeppni karla mun þá taka breytingum þar sem liðin í efstu átta sætunum munu spila í tveimur fjögurra liða riðlum þar sem leikin verður tvöföld umferð og efstu tvö lið hvors riðils fara í undanúrslit. Einnig var samþykkt tillaga frá ÍBV um að þjálfarar sem starfa með A-landsliðum og U21-landsliðum Íslands skuli ekki á sama tíma vera starfandi þjálfarar eða hluti af þjálfarateymi íslenskra félaga. Nánar má lesa um niðurstöður ársþingsins á vefsíðu HSÍ .
Go to News Site