Collector
Farþegaþotu ekið á manneskju á flugbraut í Colorado | Collector
Farþegaþotu ekið á manneskju á flugbraut í Colorado
Fréttastofa RÚV

Farþegaþotu ekið á manneskju á flugbraut í Colorado

Einn slasaðist þegar flugvél var ekið á hann á flugbraut í Denver í Colorado í Bandaríkjunum í dag. Samgönguráðherra Bandaríkjanna, Sean Duffy, segir einstaklinginn hafa brotið öryggisreglur flugvallarins með því að klifra yfir grindverk og hlaupa inn á flugbrautina. Tólf slösuðust við atvikið og fimm voru fluttir á sjúkrahús. Manneskjan sem hljóp inn á brautina sogaðist að minnsta kosti að hluta til inn í hreyfil vélarinnar, að því er bandaríski miðillinn ABC greinir frá . Upplýsingar um líðan hennar liggja ekki fyrir. Eldur kviknaði í hreyflinum, nokkur reykur myndaðist í farþegarýminu og hætt var við flugtak. Rúmlega 220 farþegar og sjö manna áhöfn, sem voru um borð, voru flutt af flugbrautinni með rútum. Vélin tilheyrir flugfélaginu Frontier, sem segist rannsaka atvikið í þaula, ásamt rekstraraðila flugvallarins og viðeigandi öryggisyfirvöldum. Félagið harmar atvikið.

Go to News Site