Collector
Jack Kirby heiðraður með götuheiti í New York | Collector
Jack Kirby heiðraður með götuheiti í New York
Fréttastofa RÚV

Jack Kirby heiðraður með götuheiti í New York

Myndasöguhöfundurinn Jack Kirby verður heiðraður á mánudaginn þegar gata í uppeldishverfi hans í New York verður nefnd í höfuðið á honum. Kirby, skírður Jack Kurtzberg, fæddist árið 1917 á heimili foreldra sinna við Essex-stræti í Manhattan. Á mánudag verður heiti götunnar breytt í Jack Kirby-veg, eða Jack Kirby Way. Óhætt er að segja að Kirby sé einn áhrifamesti myndasöguhöfundur allra tíma. Hann byrjaði að starfa í geiranum á fjórða áratug síðustu aldar og var virkur fram að þeim níunda. Lengst af starfaði hann fyrir Marvel-útgáfuna og starfaði Kirby náið með Stan Lee um árabil. Kirby kom að sköpun persóna á borð við Fantastic Four, Hulk, Captain America, Iron Man, Dr. Doom og Nick Fury fyrir Marvel. Þetta eru aðeins fá dæmi. Á áttunda áratugnum færði hann sig yfir til DC-útgáfunnar um skeið og bjó þá til „Fjórða heiminn“. Þær sögur eru í dag ákveðinn burðarstólpi söguheims DC og hafa að geyma persónur eins og Darkseid, son hans Orion og hörkukvendið Big Barda. Myndasöguhöfundurinn lést árið 1994, þá 76 ára að aldri. Kirby var vel metinn í geiranum og er þetta ekki í fyrsta sinn sem hann er heiðraður fyrir störf sín. Lögreglumaðurinn Dan Turpin í teiknimyndaþáttunum um Superman á 10. áratugnum byggði til að mynda á útliti Kirbys.

Go to News Site