Fréttastofa RÚV
Bresk yfirvöld stefna að því að breskir farþegar hollenska skemmtiferðaskipsins Hondíusar fari í sóttkví þegar þeir snúa aftur heim á mánudag. Bresk og bandarísk yfirvöld eru meðal þeirra sem skipulögðu sérstakar flugferðir til að koma löndum sínum sem voru um borð í skipinu heim, þegar það kemur til Tenerife á morgun. Þrír létu lífið um borð eftir að hantaveira greindist um borð um mánaðamótin. Þrír aðrir voru fluttir frá borði undan Grænhöfðaeyjum á dögunum. AP / Misper Apawu
Go to News Site