Collector
ÍBV kom í veg fyrir meistarafögnuð Valskvenna | Collector
ÍBV kom í veg fyrir meistarafögnuð Valskvenna
Fréttastofa RÚV

ÍBV kom í veg fyrir meistarafögnuð Valskvenna

ÍBV vann stórsigur á Val í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta í kvöld, 27-35. Valskonur voru 2-0 yfir í einvígi liðanna fyrir leikinn og hefðu með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Eyjakonur komu þó í veg fyrir það. Þær voru einu marki yfir í hálfleik, 14-15, en náðu 12 marka forystu í seinni hálfleik og gerðu út um leikinn og minnkuðu muninn í einvíginu í 2-1. Fjórði leikur liðanna verður í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. Eyjakonur fóru á kostum á Hlíðarenda í kvöld.RÚV / Mummi Lú

Go to News Site