Fréttastofa RÚV
Fulltrúa Flokks fólksins í borgarstjórn finnst notkun borgarstjóra á innkaupakorti ekki vandamál. Borgarfulltrúi Pírata segir ekki óeðlilegt að fylgst sé með eyðslu og að borgarstjóri þurfi að geta gert grein fyrir henni. Báðar segja þær að málið sýni að eftirlit sé hjá stjórnsýslunni. Notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti sem hún hefur til umráða hefur verið talsvert í umræðunni síðustu daga. Greint var frá því í vikunni að hún hefði notað kortið fyrir 753 þúsund krónur síðan hún tók við embætti fyrir rúmlega ári og hún hefur sagt notkunina eðlilega og í samræmi við reglur. Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir að það sé slæmt ef vantraust skapist þegar farið er með opinbert fé. „Við höfum lagt áherslu á góða stjórnsýslu og gagnsæi í okkar meirihlutasamstarfi. Auðvitað þurfa stjórmálamenn að tileinka sér aga og vandvirkni og mér finnst mjög eðlilegt að þegar svona kort eru notuð sé eyðslan undir stöðugu eftirliti og skoðun,“ segir hún. Hún telur eðlilegt að borgarstjóri sem hafi aðgang að slíku korti geti gert grein fyrir notkun sinni. „Og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að það sé verið að tékka á því.“ Helga Þórðardóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segir að sér þyki notkun kortsins ekki vera vandamál. Henni þykir umfjöllun síðustu daga leiðinleg. „Því ég veit hvað Heiða er dugleg og heiðarleg manneskja og á allt annað en þetta skilið.“ Hún kveðst sannfærð um að hafi Heiða gert einhver mistök muni hún laga það. „En ég hef ekki nokkra trú á því að hún hafi eitthvað misjafnt í huga. Ég er bara sannfærð um það.“ Helga tekur undir með Heiðu að málið sýni að stjórnsýslan sé að fylgjast með. Aðrir leiðtogar borgarstjórnarmeirihlutans, Líf Magneudóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir, vildu ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Go to News Site