Collector
Óttast að næturvinna geri rúmrusk | Collector
Óttast að næturvinna geri rúmrusk
Fréttastofa RÚV

Óttast að næturvinna geri rúmrusk

Heilbrigðiseftirlitið gerir athugasemdir við framkvæmdir við Fossvogsbrú á nóttunni. Staðarstjóri Ístaks segir eftirlitið ekki hafa tekið tillit til hljóðvistarmælinga sem gerðar eru reglulega. Brúin Alda er hluti af Borgarlínunni og er ætluð borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum auk forgangsaksturs lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs. Hún verður 270 metra löng og 17 metra breið og tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur. Nú hafa framkvæmdaraðilar óskað eftir leyfi til að fá að vinna á nóttunni. Kranarnir sem þeir nota til að koma fyrir brúarstólpunum eru svo háir að þeir geta truflað flugumferð á daginn. Ístak hefur fengið tímabundna undanþágu til að reisa Fossvogsbrú á nóttunni. Það er gert til að trufla ekki flugumferð á daginn. Heilbrigðiseftirlitið hefur áhyggjur af hávaða sem geti raskað svefni. Ístak fylgist með hljóðmörkum Guðjón Örn Björnsson er staðarstjóri hjá Ístak. „Það er verið að vinna hér við að reka niður staura og það er verið að vinna á sjó. Þetta er frekar nýtt, alla vegana hjá okkur, að vinna af pramma við að reka niður stóra staura.“ Næturvinnan hafi byrjað 2. maí. „Og við erum að klára það núna á næstu dögum að koma fyrir þessum staurum. Þá verður ákveðin bið í tvær vikur u.þ.b. það og svo hefst vinnan aftur við aðrar framkvæmdir að næturlagi.“ Er mikill hávaði af þessu? „Nei, ekki mikill. En vissulega er þetta einhver truflun sem við reynum að lágmarka eins og hægt er.“ Heldur þú að þetta raski svefni fólks hérna í hverfinu? „Ég vona innilega ekki. Við erum að mæla hljóðvist á 2-3 stöðum hér á Kársnesinu og fylgjumst vel með því raski sem við gerum og sem við völdum. Leyfilegt hljóðstig á næturnar er 40 desibil og við erum að fara upp í 40-45 desibil. Hljóðvistin þegar við erum að störfum er örlítið hærri en þegar við erum ekki að störfum en við reynum að lágmarka það eins og hægt er,“ segir Guðjón. Að mati heilbrigðiseftirlitsins eru líkur á að framkvæmdin valdi hávaðaónæði sem muni hafa áhrif á íbúa í nágrenninu. Full ástæða sé til að hafa áhyggjur af áhrifum þessa á svefn og hvíld íbúa og þar með heilsu þeirra. Hafa einhverjir kvartað hér í hverfinu? „Nei. Ekki svo ég viti til.“ Hvenær getur maður svo hjólað fyrir brúna? „16. júní 2028,“ segir Guðjón.

Go to News Site