Fréttastofa RÚV
Grindavík vann nauman sigur á Tindastóli 85-80 í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í kvöld. Grindavík náði mest 19 stiga forystu í fyrri hálfleik og var 15 stigum yfir í hálfleik, 49-34. Tindastóll vann þennan mun upp og komst yfir undir lok þriðja leikhluta en Grindvíkingar náðu aftur góðri forystu í upphafi lokaleikhlutans. Tindastóll náði að minnka muninn niður í þrjú stig þegar 19 sekúndur voru eftir en komst ekki nær. Ólafur Ólafsson fyrirliði Grindavíkur.Mummi Lú Grindavík hefur þar með náð 1-0 forystu í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Liðin mætast næst á Sauðárkróki á þriðjudaginn.
Go to News Site