Collector
Nær hundrað handtekin fyrir ólögleg mótmæli í París | Collector
Nær hundrað handtekin fyrir ólögleg mótmæli í París
Fréttastofa RÚV

Nær hundrað handtekin fyrir ólögleg mótmæli í París

46 manns eru í gæsluvarðhaldi í París í tengslum við ólögleg mótmæli hægri-öfga- og andfasistahópa í dag. Alls voru 97 handtekin á nokkrum svæðum í borginni í tengslum við mótmælin. Fréttaveitan AFP hefur þetta eftir lögreglunni í París. Samkvæmt lögreglunni var fólkið handtekið fyrir að hópa sig saman í þeim tilgangi að beita ofbeldi og valda eignatjóni, fyrir hópslagsmál og fyrir að bera ólögleg vopn. Lögreglan hefur bannað mótmæli á vegum hægri-öfgahópsins sem er kallar sig Comité du 9-Mai (C9M) eða 9. maí-nefndin. Hópurinn hefur mótmælt árlega til að minnast hægriöfgamanns sem lést árið 1994 þegar hann féll af húsþaki á flótta frá lögreglu. Nær 200 sektaðir fyrir að brjóta gegn banninu Þá bannaði lögreglan einnig gagn-mótmæli andfasista undir yfirskriftinni „Enga nasista í París“ sem áttu að fara fram seinni partinn í dag. Dómstóll staðfesti bann á mótmælum hópanna tveggja vegna hættu á óeirðum. Lögreglan segir ástæðu bannsins vera dauða hægri-öfgamanns í Lyon í febrúar og að nasistakveðjur hefðu sést í göngu C9M á síðasta ári. „Þótt mótmælendur verði að geta komið saman í fullkomnu öryggi verður að virða bannið. Og átök milli öfgahægri og öfgavinstri aðgerðasinna verða ekki liðin,“ er haft eftir lögreglunni í frétt AFP. 182 einstaklingar voru sektaðir í dag fyrir að fara að brjóta gegn banninu. Þúsund gengu með nýnastimerki Raphael Ayma, talsmaður C9M og leiðtogi nýfasistahóps í Suður-Frakklandi, segir lögreglunni einni um að kenna komi til óeirða. Hann segist óttast um tjáningarfrelsi í Frakklandi vegna bannsins. Lögreglan bannaði mótmæli C9M í fyrra en dómstóll ógilti ákvörðunina. Þúsund hægri-öfgamanna gengu þá fylktu liði um París, flestir með grímur og tákn sem tengjast hugmyndafræði nýnasista.

Go to News Site