Fréttastofa RÚV
Listaháskóli Íslands sameinar starfsemi sína á einn stað í Stakkahlíð 1 en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag. Starfsemi Listaháskólans hefur verið á sjö stöðum. Ágóðinn af þróun lóðar Listaháskólans í Laugarnesi, sem nú verður umbreytt í íbúðabyggð, rennur beint til uppbyggingar skólans í Stakkahlíð. Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, fagnar flutningi skólans í Stakkahlíð. „Þar eru sögufræg og falleg hús sem við munum nýta og í rauninni endurbæta í takt við okkar starfsemi. Svo verður gert ráð fyrir viðbyggingu á svæðinu sem mun hýsa sviðslistir, tónlist og kvikmyndalist,“ segir Kristín. Ýmsir kostir séu við að færa starfsemi skólans á einn stað. „Það myndast algjör suðupottur, það býður upp á miklu þverfaglegra samtal og námsumhverfið styrkist þannig að þetta býr til ákveðna dýnamík sem við höfum óskað eftir allt frá því að skólinn var stofnaður,“ segir Kristín. Viljayfirlýsing um tilfærslu allra starfsstöðva Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð 1 var undirrituð í dag. Rektor skólans segir ný húsakynni bjóða upp á betra námsumhverfi.
Go to News Site