Fréttastofa RÚV
Séð yfir Bamako, höfuðborg Malí.AP / Uncredited Að minnsta kosti 80 voru drepnir í árás jíhadista í Mið-Malí í gær. Jíhadistahópurinn JNIM tengist hryðjuverkasamtökunum al-Qaida og hefur með árásum sínum, sprengutilræðum og öðrum ódæðum gert líf íbúa nær óbærilegt víða um landið undanfarið. Þá voru minnst 30 drepnir í annarri árás á þorp í Mið-Malí á miðvikudaginn. Malí hefur glímt við versnandi öryggisástand í meira en áratug. Fjölmörgum svæðum í norðurhluta landsins er stjórnað af vígahópum, uppreisnarmönnum og glæpasamtökum sem hafa lengi barist um yfirráð á stórum svæðum landsins.
Go to News Site