Fréttastofa RÚV
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), kom til Tenerife í gær til að aðstoða og hafa umsjón með brottflutningi farþega úr hollenska skemmtiferðaskipinu Hondiusi. Von er á skipinu til Tenerife innan nokkurra klukkustunda. Ghebreyesus hélt blaðamannafund á Tenerife og á fundinum lagði hann áherslu á að hantaveiran væri ekki sambærileg við Covid-19. Hann sagði líkurnar á því að íbúar Tenerife gætu smitast vera mjög litlar vegna eðlis veirunnar en líka vegna þess að spænsk yfirvöld hefðu unnið vel allan undirbúning fyrir komu skipsins til að fyrirbyggja öll vandamál. Hondius fær ekki að leggjast að bryggju á Tenerife. Breska ríkisútvarpið BBC segir að farþegum og hluta áhafnarinnar um borð verði skipt upp í hópa eftir þjóðernum og flutt í hópum á bátum í land og áfram út á flugvöll. Bretland, Bandaríkin og fjölmörg Evrópuríki hafa sent flugvélar til Tenerife til að sækja ríkisborgara sína og flytja þá til heimalanda sinna. Spænskir farþegar skemmtiferðaskipsins verða fluttir áfram til Madríd þar sem þeirra bíður einangrun á Gomez Ulla-herspítalanum. Meðgöngutími hantaveirunnar er allt að níu vikur en ekki er ljóst hversu lengi fólkinu verður gert að vera í einangrun. Ekki fá þó allir að snúa aftur heim alveg strax. Um þrjátíu manns úr áhöfninni verða áfram um borð og siglir skipinu til heimahafnar í Hollandi.
Go to News Site