Collector
Þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað í fylgd fullorðins einstaklings | Collector
Þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað í fylgd fullorðins einstaklings
Fréttastofa RÚV

Þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað í fylgd fullorðins einstaklings

Fullorðinn einstaklingur var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í gærkvöld eða nótt en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingurinn var ölvaður og hótaði lögreglumönnum líkamsmeiðingum og var hann vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum víman og hægt verður að ræða við hann. Foreldrar ungmennanna komu á lögreglustöð ásamt fulltrúa barnaverndar þar sem rætt var við þau um málið. Þá fékk lögregla tilkynningu um unga menn sem voru að slá golfbolta í átt að bílasölum. Eitthvað tjón er á bifreiðum eftir golfboltana. Alls gistu sjö einstaklingar fangaklefa lögreglu og 102 mál voru bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17:00 síðdegis í gær og þar til klukkan 05:00 í morgun.

Go to News Site