Fréttastofa RÚV
Biobio svæðið í Mið-Síle.Google map Jarðskjálfti að stærðinni 5,8 varð í Biobio-svæðinu í Mið-Chile í gærkvöld að staðartíma, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK . Skjálftinn átti upptök sín á 23 kílómetra dýpi samkvæmt Evrópsku jarðskjálftamiðstöðinni (EMSC). Ekki hafa borist fréttir af manntjóni eða eyðileggingu á innviðum. Jarðskjálftar eru tíðir á Biobio-svæðinu. Árið 1960 fórust þar 2.000 manns í stærsta skráða jarðskjálfta sögunnar, sem mældist 9,5 að stærð.
Go to News Site