Collector
Ótíð í víti: „Maður er algjörlega sleginn“ | Collector
Ótíð í víti: „Maður er algjörlega sleginn“
Fréttastofa RÚV

Ótíð í víti: „Maður er algjörlega sleginn“

Í sínu nýjasta ritverki deilir Gyrðir Elíasson með lesendum erfiðri lífsreynslu og dregur ekkert undan. Bókin nefnist Ótíð í víti: Lífsreynslusaga og fjallar um baráttu hans við þunglyndi, kvíða og geðsjúkdóm. „Hann lýsir því að hann ólst upp sem mikill kvíðasjúklingur og hefur glímt við mikið þunglyndi,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar. „Það sem gerist á covid-tímanum er að hann fer í sprautu, fær hjartsláttartruflanir og fer á lyf. Það er komið árið 2022 og á hálfu ári reynir hann tvisvar að svipta sig lífi.“ Hún segir frásagnir Gyrðis af sjálfsvígstilraunum sínum vera þannig að „maður er algjörlega sleginn.“ „Það er eiginlega þannig að þegar maður er búinn að lesa þessa bók þá setur mann eiginlega hljóðan. Þetta er gríðarlega áhrifamikil og merkileg bók. Hann lýsir líðan sinni af algjöru miskunnarleysi.“ Hún segir viðbrögð lækna einnig sláandi. Það hafi skipt Gyrði miklu máli að á hann væri hlustað en fann fyrir því að læknar höfðu ekki tíma til þess þar til hann hitti lækni á Suðurnesjum eftir fyrri sjálfsvígstilraunina sem sagði við hann: „Þú ert þjóðargersemi, þú mátt ekki gera þetta aftur.“ „Það er svo fallegt augnablik í þessari stórkostlegu bók. Það hljómar eins og klisja að bækur fylgi manni en maður les þessa bók og er að hugsa um hana mörgum dögum seinna.“ Sýnir vanmátt sinn gagnvart því að koma líðan sinni til skila Þorgeir Tryggvason segir vitnisburð Kolbrúnar á bókinni vera orð að sönnu. „Þetta er feikilega áhrifaríkt. Þetta er mjög afhjúpandi finnst manni. Það virkar eins og það sé svo mikill heiðarleiki og hann er svo tilbúinn að ganga nærri sér í lýsingum á þessu.“ Í gegnum bókina reynir Gyrðir að lýsa því hvernig honum líði án árangurs. „Hann þráir að útskýra hvernig það er að vera hann í þessu ástandi. Hann er að sýna vanmátt sinn gagnvart því að koma því til skila. Það út af fyrir sig er mjög áhrifaríkt.“ Einnig segir Gyrðir frá bernskuminningum, tengslum sínum við hinar ýmsu bækur og öðru sem hefur snert hann í gegnum ævina. Minning hans af því að hafa heyrt af andláti Louis Armstrong sem ungur drengur og hvernig hann lést í svefni sló Þorgeir rosalega. „Lengi á eftir þorir hann ekki að sofna. Ég hafði aldrei hugsað út í það hvað þetta er óhugnanleg tilhugsun sem manni finnst að sumu leyti vera hinn eini sanni góði dauðdagi. Það er margt svona.“ Hann segir Gyrði einstaklega listfengan og flinkan höfund að glíma við lýsingar á einhverju sem ekki sé hægt að lýsa. „Bara það gerir bókina feikilega verðmæta. Fyrir utan allar lýsingar á samskiptum hans við heilbrigðiskerfið, einstaka lækna, samband hans við hin ólíku lið sem hleypa þessu öllu saman af stað.“ „Þetta er allt ansi magnað.“ Margt sem fær á sig nýjan blæ Gyrðir fjalli um þversögnina í því að reyna að svipta sig lífi en óttast samt dauðann og vilja lifa. „Hann er bæði að reyna að miðla þessu en líka að reyna að skrifa sig til skilnings á ástandinu sem hann er í,“ segir Þorgeir. Hann telur það líklega ómaksins vert að fara aftur til baka í höfundarsafn Gyrðis eftir að hafa lesið þessa bók. „Það er ábyggilega ýmislegt sem fær á sig annan blæ.“ Kolbrún segir rétt að muna orð læknisins við Gyrði, að hann sé þjóðargersemi. Gagnrýnendur Kiljunnar segja Ótíð í víti: Lífsreynslusögu eftir Gyrði Elíasson vera merkilega og áhrifamikla bók sem gengur nærri höfundinum. Hann lýsi af miskunnarleysi þunglyndi sínu og sjálfsvígstilraunum og reyni að koma líðan sinni í orð. Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um Ótíð í víti: Lífsreynslusögu eftir Gyrði Elíasson. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Go to News Site