Collector
Fyrstu farþegarnir af Hondius fljúga til síns heima | Collector
Fyrstu farþegarnir af Hondius fljúga til síns heima
Fréttastofa RÚV

Fyrstu farþegarnir af Hondius fljúga til síns heima

Spænsk stjórnvöld hafa hafið flutninga farþega af hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius sem kom til Tenerife í morgun. Flutningarnir ganga vel, að sögn heilbrigðisráðherra Spánar. Breskir hermenn stukku í fallhlífum á afskekkta eyju í suður-Atlantshafi til að aðstoða breskan ríkisborgara sem talið er að sé smitaður af hantaveiru. Flókin aðgerð sem krafðist samvinnu 23 landa Um klukkan sjö í morgun fór læknateymi um borð í skemmtiferðaskipið til að skoða farþega og áhöfn og skima fyrir veirunni. Mikill viðbúnaður er á eyjunni og stjórnvöld þar hafa undirbúið komu skipsins vel. Það fékk þó ekki að leggjast við höfn heldur liggur það úti fyrir ströndu eyjarinnar. Tugir sérfræðinga eru til taks á Candelaria-sjúkrahúsinu á eyjunni ef einhver um borð skildi veikjast alvarlega meðan á flutningunum stendur. Þar er búið að koma upp einangrunarherbergjum þar sem hægt er að taka á móti sjúklingum, þar er einnig skimunarbúnaður og öndunarvél. Mar Martin, yfirlæknir á gjörgæsludeild sjúkrahússins, sagði við breska ríkisútvarpið BBC að starfsfólk væri undirbúið undir að taka á móti sjúklingum. „Við höfum aldrei séð hantaveiru áður, en það er veira og henni geta fylgt kvillar, rétt eins og við glímum við á hverjum degi. Við erum fullkomlega þjálfuð fyrir það.“ Mónica García, heilbrigðisráðherra Spánar, sagði á fundi með fréttamönnum í morgun að aðgerðin væri fordæmalaus. „Ég vil þakka Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, Sóttvarnastofnun Evrópu, stjórnvöldum og öllum þeim ríkjum sem taka þátt. Þessi aðgerð krefst samvinnu 23 landa.“ Hún sagði aðgerðina hafa gengið vel og að allir farþegar væru enn einkennalausir. Hún er afar flókin, farþegum er skipt niður í nokkra hópa eftir þjóðerni. Þeir eru síðan fluttir á litlum bátum til hafnar. Þegar þeir koma þangað fara þeir upp í rútu sem keyrir þá út á flugvöll í nágrenninu. Þar bíða flugvélar sem fljúga með fólkið til síns heima. Fyrstu farþegarnir til að fara frá borði í morgun voru 14 Spánverjar. Fólkið var allt með grímur, í bláum plastsloppum og með hárnet. Það var í fylgd heilbrigðisstarfsfólks í hlífðarbúningum. Þar á eftir verða Þjóðverjar, Belgar, Grikkir og hluti áhafnar skipsins fluttir frá borði í flugvél sem fer til Hollands. Aðrar flugvélar eru síðan væntanlegar eftir það, meðal annars til Bretlands og Bandaríkjanna. Búist er við að síðasta flugvélin fari með farþega til Ástralíu á mánudag. Það voru 146 um borð, auk þeirra sem létust hafa átta til viðbótar greinst með veiruna. Farþegar og áhöfn hafa verið í sóttkví á herbergjum sínum síðustu daga til að koma í veg fyrir að veiran breiðist frekar út en hún getur smitast milli manna við mikla nánd. Þó fara ekki allir frá borði því um 30 úr áhöfn skipsins verða eftir og sigla því til Hallands, þar sem það verður sótthreinsað. llir sem voru um borð í skipinu þurfa síðan að vera í sóttkví. Meðgöngutími veirunnar, það er tímnn frá smiti þar til einkenni koma fram, getur verið allt að sex vikur þannig að fólk gæti þurft að vera í sóttkví í töluvert langan tíma. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, kom til Tenerife í gær til að aðstoða og hafa umsjón með brottflutningi farþegana. Hann sagði á blaðamannafundi með heilbrigðisráðherra Spánar í morgun að þetta væri ekki annar heimsfaraldur. „Þetta er ekki annað Covid. Almenningi stafar ekki hætta af veirunni. Þannig að það er óþarfi fyrir fólk að vera hrætt eða fyllast skelfingu.“ Komu manni til aðstoðar á afskekktri eyju Læknar í breska hernum stukku í fallhlífum á eyjuna Tristan da Cunha í Suður-Atlantshafi til að aðstoða breskan ríkisborgara sem talið er að sé smitaður af hantaveirunni. Maðurinn yfirgaf skemmtiferðaskipið um miðjan apríl þegar það kom í höfn á eyjunni. Mikill viðbúnaður er á spænsku eyjunni Tenerife þar sem verið er að flytja farþega á skemmtiferðaskipinu Hondius frá borði. Maðurinn býr á eyjunni en hún er afskekktasta yfirráðasvæði Breta sem búið er á. Aðeins 221 íbúi er þar og engin flugbraut. Því er aðeins hægt að komast þangað með skipi. Sex fallhlífahermenn, einn gjörgæslulæknir og gjörgæsluhjúkrunarfræðingur komu til eyjarinnar í gær. Þar eru allajafna tveir læknar. Auk þess voru 3,3 tonn af lækingavöru flutt til eyjarinnar. Maðurinn sýndi fyrst einkenni um tveimur vikum eftir að hann yfirgaf skipið en hann er í einangrun og ástand hans er sagt stöðugt. Varnarmálaráðuneyti Bretlands segir þetta í fyrsta skipti sem breski herinn fari í svona aðgerð, þar sem hermenn stökkva í fallhlífum á stað til að veita mannúðaraðstoð. Yvette Cooper, utanríkisráðherra Bretlands, segir þessa óvenjulega aðgerð endurspegla „óbilandi skuldbindingu okkar gagnvart fólki á yfirráðasvæðum okkar og breskum ríkisborgurum, hvar sem þeir eru staddir.“

Go to News Site