Collector
Fjöldi nýrra starfa í farvatninu fyrir norðan | Collector
Fjöldi nýrra starfa í farvatninu fyrir norðan
Fréttastofa RÚV

Fjöldi nýrra starfa í farvatninu fyrir norðan

Nýverið bárust fréttir af fyrirhugaðri 30 milljarða uppbyggingu AtNorth á Akureyri, fyrirtækið GIGA-42 ræðir við Landsvirkjun og Landsnet um uppbyggingu gagnavers á Bakka við Húsavík og í gær voru auglýst 11 ný störf í tengslum við gagnaver og uppbyggingu Borealis á Blönduósi. Samkvæmt Hjálmari Boga Hafliðasyni, forseta sveitarstjórnar í Norðurþingi, er vilyrði frá sveitarfélaginu að GIGA42 geti byggt upp sitt gagnaver á Bakka, nái þeir samningum við orkufyrirtæki um raforku. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri segir mikinn áhuga á að koma með fleiri gagnaver í bæinn: „Það eru náttúrlega mjög margir sem hafa sýnt því áhuga á að koma hingað, það liggur alveg fyrir. Það er bara þannig umhverfi sem hentar gagnaverum hér í bænum. Það er öll þjónusta til staðar og fyrirtæki sem geta hugað að og aðstoðað þessi gagnaver,“ sagði Ásthildur Sturludóttir. Ásthildur segir uppbyggingu gagnavera skapa fjölmörg störf. Sveitarstjóri Húnabyggðar tekur í svipaðan streng og Ásthildur og fagnar uppbyggingu Borealis Data Center: „Þetta er bara ótrúlega stórar fréttir fyrst og fremst fyrir okkur. Þetta kannski hljómar ekki mikið en svona hlutfallslega séð. Þessari starfsemi fylgja ekki bara umsvif á uppbyggingartíma, heldur líka fleiri föst störf. Þetta er bara að öllu leyti að mínu viti,“ sagði Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar. Næg orka sé í Blönduvirkjun og Þeistareykjum fyrir þessari uppbyggingu: „Grunnforsenda fyrir þessar uppbyggingu er orkuframleiðsla og orkudreifikerfi. Við erum orkusveitarfélag, við erum með virkjun í okkar sveitarfélagi og hún er bara ekkert svo langt frá okkur.“

Go to News Site