Collector
ÍBV fær sekt fyrir „vítaverða“ hegðun áhorfanda | Collector
ÍBV fær sekt fyrir „vítaverða“ hegðun áhorfanda
Fréttastofa RÚV

ÍBV fær sekt fyrir „vítaverða“ hegðun áhorfanda

Aganefnd HSÍ, handknattleikssambands Íslands, hefur fundað og skilað niðurstöðu um atvik sem átti sér stað á leik ÍBV og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta í Vestmannaeyjum sl. þriðjudag. Á 32. mínútu leiksins heyrist sungið úr stúkunni „Hafdís fílar skæri“ sem er vísun í kynlíf tveggja kvenna og beindist að Hafdísi Renötudóttur, markverði Vals. Atvikið var tilkynnt til HSÍ og í erindi sem barst sambandinu vegna atviksins segir m.a. „ Ummælin vísa augljóslega með kynferðislegum og niðrandi hætti til kynhneigðar leikmannsins, sem er lesbía. Um er að ræða ósmekklega, særandi og homófóbíska framkomu sem á engan hátt á heima innan íslensks handknattleiks eða í íþróttastarfi almennt.“ Í 17. grein reglugerðar HSÍ um agamál er fjallað um brot áhorfenda og samkvæmt greininni er aganefnd m.a. heimilt að beita félag viðurlögum ef áhorfendur gerast sekir um vítaverða framkomu gagnvart leikmönnum. Í úrskurði aganefndar HSÍ segir m.a. að nefndin hafi kynnt sér gögn málsins, þ.m.t. myndbandsupptöku og greinargerð ÍBV. Í niðurlagi úrskurðar aganefndarinnar segir að niðurstaðan sé að handknattleiksdeild ÍBV verði gerð sekt og teljist hún „hæfilega ákveðin 150.000 krónur.“ Handknattleiksdeild ÍBV brást við atvikinu með yfirlýsingu á fimmtudaginn þar sem Hafdís var beðin afsökunar og upplýst að umræddur stuðningsmaður hafi verið settur í tímabundið bann. Liðin mætast aftur í Eyjum á þriðjudag ÍBV vann stórsigur á Val í þriðja leik liðanna í einvíginu í gærkvöld og minnkaði þar með muninn í einvíginu í 2-1. Liðin mætast því aftur í Vestmannaeyjum á þriðjudag og geta Valskonur með sigri þá tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Ljóst er að umræddur áhorfandi fær ekki að mæta á þann leik.

Go to News Site