Collector
Nýliðar ÍBV enn með fullt hús stiga | Collector
Nýliðar ÍBV enn með fullt hús stiga
Fréttastofa RÚV

Nýliðar ÍBV enn með fullt hús stiga

Nýliðar ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta eru óstöðvandi í upphafi Íslandsmótsins. ÍBV vann 2-0 sigur á Þór/KA í Eyjum í dag og hefur unnið alla fjóra leikina sína í deildinni. Allison Grace Lowrey kom ÍBV yfir á 30. mínútu í 1-0 og Olga Sevcova skoraði seinna markið á 69. mínútu. Kristín Klara Óskarsdóttir leikmaður ÍBV.RÚV / Mummi Lú Í hinum leik dagsins vann FH 2-1 útisigur á Stjörnunni. Deja Sandoval og Hafrún Birna Helgadóttir skoruðu mörk FH en Hulda Hrund Arnarsdóttir minnkaði muninn fyrir Stjörnuna í uppbótartíma. Þetta voru fyrstu leikir fjórðu umferðar sem lýkur á morgun með þremur leikjum. Breðablik - Valur Fram - Víkingur Þróttur - Grindavík/Njarðvík Staðan í deildinni

Go to News Site