Fréttastofa RÚV
Fullorðinn einstaklingur var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í gærkvöld eða nótt en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingurinn var ölvaður og hótaði lögreglumönnum líkamsmeiðingum og var vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann. Foreldrar ungmennanna komu á lögreglustöð ásamt fulltrúa barnaverndar þar sem rætt var við þau. Þá fékk lögregla tilkynningu um unga menn sem slógu golfbolta í átt að bílasölum. Eitthvert tjón er á bifreiðum eftir golfkúlurnar. Alls gistu sjö fangaklefa lögreglu og 102 mál voru bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 síðdegis í gær og þar til klukkan fimm í morgun.
Go to News Site