Fréttastofa RÚV
Lokað verður fyrir bílaumferð á götunni fyrir framan aðalbrautarstöðina í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Andstæðigar segja áformin aðför að réttindum ökumanna. Í stað akbrautanna á Kaivokatu, eða Brunngötu , koma tvö léttvagnaspor, trjágróður og kaffihús. Samkvæmt frétt finnska ríkisútvarpsins YLE er þetta skref í þá átt að umbreyta hjarta miðborgarinnar í gönguhverfi. Þessi borgarhluti er einn sá þéttbýlasti og fjölfarnasti í Helsinki þar sem um 200 þúsund manns fara um daglega. Ráðgert er að framkvæmdum muni ljúka í upphafi næsta áratugar. Minnihluti harmar aðför að réttindum ökumanna Borgarstjórn samþykkti áformin á miðvikudaginn með ríflegum meirihluta - 80 atkvæðum gegn 5. Mótatkvæðin voru frá fjórum fulltrúm Finnnaflokksins og einum Krisitlegum Demókrata. Þeir höfðu ýmislegt við málið að athuga, en þeirra helstu rök voru að með því að loka fyrir umferð um svæðið væri gengið á rétt ökumanna. YLE hefur eftir Daniel Sazonov, borgarstjóra Helsinki, að gert væri ráð fyrir uppbyggingu á bílastæðakjöllurum á svæðinu. Umferðinni sem nú fer um Kaivokatu yrði beint að stofnleiðum utar í borginni. Kostnaður við framkvæmdirnar verður um sex milljarðar króna.
Go to News Site