Fréttastofa RÚV
Arsenal náði fimm stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með dramatískum 1-0 útisigri á West Ham. Það stefndi í jafntefli sem hefði galopnað titilbaráttuna en Leandro Trossard skoraði sigurmarkið á 83. mínútu. Langt var liðið inn í uppbótartíma þegar Callum Wilson skoraði mark fyrir West Ham og þá sauð upp úr. Arsenal menn vildu meina að brotið hefði verið á markverðinum David Raya og skjádómarar tóku sér margar mínútur í að fara yfir atvikið. Að lokum dæmdu þeir brotið og markið fékk ekki að standa. Arsenal fagnaði því gríðarlega mikilvægum sigri og er fyrir vikið ennþá í bílstjórasætinu í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn við Manchester City. Arsenal er með 79 stig á toppnum, fimm stigum ofar en Man City sem á leik til góða. Arsenal á eftir tvo leiki í deildinni en Man City þrjá. West Ham er áfram í efsta fallsætinu, 18. sæti, einu stigi á eftir Tottenham sem á leik til góða. Leeds og Nottingham Forest laus við falldrauginn Fyrr í dag fóru þrír leikir fram í deildinni sem lauk öllum með jafntefli. Leeds og Nottingham Forest hafa nú endanlega kvatt fallbaráttuna en það varð ljóst eftir sigur Arsenal á West Ham. Burnley - Aston Villa 2-2 Crystal Palace - Everton 2-2 Nott. Forest - Newcastle 1-1
Go to News Site