Fréttastofa RÚV
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir verð á eldsneyti hafa haldist óbreytt frá 1. maí en að tilefni sé til þess á næstu dögum að lækka það í kjölfar lækkunar á heimsmarkaði. Virðisaukaskattur á eldsneyti úr dælu var lækkaður úr 24% í 11% prósent 1. maí, til að bregðast við áhrifum átaka í Mið-Austurlöndum á olíuverð. Lækkunin gildir til 31 ágúst. Runólfur segir olíuverð vera í ólgusjó vegna ástandsins í Íran en að verð á hráolíu og afleiddum afurðum bensín- og dísilolíu hafi lækkað allhressilega á heimsmarkaði frá lokum marsmánaðar. „Við bindum vonir við að það gæti farið að skila sér í einhverri lækkun til viðbótar hér á landi. En það er ekki útséð að það sé að skila sér strax. En hvernig sem það fer þá er allavega tilefni til þess á næstu dögum að lækka verð frekar á eldsneyti að óbreyttu.“ Framkvæmdin hafi skilað sér og sé af hinu góða. Runólfur nefnir þar sérstaklega eftirlit af hálfu hins opinbera, til að mynda heimild Samkeppniseftirlitsins til að sekta olíufélög ef þau brjóta gegn lögum um lækkunina. „Samkeppniseftirlitið fékk auknar valdheimildir til að grípa inn í ef það væru brögð á því að einhver væri ekki að skila þessu til neytenda. Þetta er fákeppnismarkaður og þegar aðilum á markaði er ekki treystandi til að skila sanngjörnu vöruverði til neytenda þá hefur hið opinbera ákveðnar skyldur gagnvart neytendum.“ Runólfur segir að það hafi verið rétt ákvörðun að ráðast í þessar aðgerðir á þessum tímapunkti. Þær hafi skilað sér strax og muni væntanlega hafa jákvæð áhrif á vísitölu.
Go to News Site