Collector
Hagnast um milljarða á bensínstöðvarlóðum í Reykjavík | Collector
Hagnast um milljarða á bensínstöðvarlóðum í Reykjavík
Fréttastofa RÚV

Hagnast um milljarða á bensínstöðvarlóðum í Reykjavík

Lóð sem áður var bensínstöðvarlóð og Reykjavíkurborg afhenti Olís með byggingarrétti endurgjaldslaust hefur margfaldast í verði. Borgin samþykkti framsal lóðarinnar frá félagi sem tengist olíufélaginu til byggingarverktaka. Virði lóðarinnar jókst um rúman hálfan milljarð króna á 20 mánuðum án þess að nokkrar framkvæmdir hæfust á reitnum. Hafa selt bensínstöðvarlóðir fyrir milljarða – sitja enn á verðmætum reitum Olíufélögin og félög þeim tengd hafa selt lóðir í Reykjavík fyrir rúma fimm milljarða króna hið minnsta og eiga enn nokkrar lóðir óseldar. Þetta eru bensínstöðvarlóðir sem borgin afhenti þeim með leyfi til að byggja fjölbýlishús. Ekkert hefur verið byggt á lóðunum, fyrir utan grunn á einni. Áhöld eru um hvort rétt hafi verið staðið að samningum borgarinnar við olíufélögin. Til stendur að byggja íbúðir á lóðunum með það að augnamiði að flýta uppbyggingu og þétta byggð. Borgarstjóri þess tíma sagði þetta í samræmi við stefnu borgarinnar í loftslags- og lýðheilsumálum. Fréttastofa óskaði eftir afriti af öllum kaupsamningum sem gerðir hafa verið um bensínstöðvarlóðirnar frá þeim tíma sem Reykjavíkurborg afhenti olíufélögunum þær. Þar má sjá að olíufélögin hafa öll selt lóðirnar, hverja og eina fyrir hundruð milljóna króna inn í eignarhaldsfélög. Síðan hafa þær verið framseldar þaðan með samþykki Reykjavíkurborgar, til byggingaverktaka, jafnvel nærri þrefalt dýrar. Umdeildir samningar við olíufélögin til skoðunar hjá borgarlögmanni Þetta eru allt lóðir sem voru í eigu Reykjavíkurborgar og borgin leigði olíufélögum þær með leyfi fyrir bensínafgreiðslu og sjoppurekstri. Sumarið 2021 samþykkti borgarráð að olíufélögin fengju lóðirnar með byggingarrétti án sérstaks endurgjalds. Engir aðrir komust að samningaborðinu. Borgin lét hvorki vinna kostnaðarmat né lögfræðiálit fyrir samningana. Fimm ár liðin – lítil uppbygging hafin Í sumar verða liðin fimm ár frá undirritun samninga borgarinnar við olíufélögin um lóðirnar. Lítið sem ekkert hefur gerst á reitunum annað en að að sumum bensínstöðvum hefur verið breytt í samlokusjoppur, öðrum lokað og þær og aðrar sem eru enn í rekstri drabbast niður. Olíufélögin hafa stofnað fasteignaþróunarfélög og fært virði lóðanna þar inn og sum hafa selt frá sér lóðirnar til verktaka. Byggingarréttur er veðsetjanlegur og getur gengið kaupum og sölum óháð áformum um nýtingu hans. Samkvæmt þinglýstum gögnum hefur Skel nú selt fjórar af sínum bensínstöðvarlóðum fyrir um það bil 1,7 milljarða króna. Olís hefur selt sínar lóðir fyrir um það bil 1,3 milljarða króna. Hagar, sem eiga Olís, hafa auk þess selt reit Stekkjarbakka 4-6, sem var hluti af samkomulaginu við olíufélögin, fyrir um það bil 1,7 milljarða króna. Á þeim reit eru fasteignir fyrir sem metnar eru 700 milljónum króna lægra en lóðin seldist á. N1 hefur selt tvær af sínum lóðum fyrir um það bil milljarð króna, 500 milljónir króna hvor en situr enn á fjórum verðmætum bensínstöðvarlóðum sem og ávaxtast vel án þess að nokkuð gerist. Atlantsolía situr enn á sinni lóð. Egilsgata 5 Áhugavert er að skoða hvað hefur gerst á einni þessara lóða: Egilsgötu 5. Ólíkt hinum lóðunum eru þó framkvæmdir nú hafnar á reitnum. Sumarið 2022 seldi Olíufélag Íslands eignarhaldsfélaginu BBL 179 lóðina fyrir tæpar 300 milljónir króna. (287.349.295 kr.) Tuttugu mánuðum síðar, í mars árið 2024, seldi eignarhaldsfélagið BBL 179 verktakafyrirtæki sömu lóð fyrir 800 milljónir króna. (805.000.000 kr.) Samkvæmt þinglýstum kaupsamningum eykst virði lóðarinnar þarna um rúman hálfan milljarð á tæpum tveimur árum án þess að skófla færi í jörðina. Fréttastofa hefur undir höndum samþykki borgarinnar fyrir framsalinu á þessari lóð og fleiri bensínstöðvarlóðum. Framkvæmdastjóri Klasa, fasteignaþróunarfélags, sem hefur þróað reitinn, segir lóðina hafa selst á markaðsvirði. Hafa ber í huga að á þessum reitum eru fasteignir en virði lóðanna sem nú ganga kaupum og sölum er margfalt fasteignamat þeirra mannvirkja sem á þeim standa. Á þessum 12 lóðum sem borgin samdi við olíufélögin að umbreyta voru fimm lóðarleigusamningar þegar útrunnir. Á einni er hálft ár eftir af leigutímanum, en á hinum er hann lengri. Á fimm lóðum voru engin uppkaupsákvæði í leigusamningum, sem þýðir að að leigutíma liðnum getur Reykjavíkurborg tekið lóðina til sín. Olíufélagið þarf að sjá um að skila henni auðri, svo sem rífa byggingar, grafa upp olíutanka, hreinsa jarðveginn og farga öllu. Borgin getur þá boðið hana til kaups og sett ágóðann í borgarsjóð. Sú leið verður til að mynda farin varðandi stóra bensínstöðvarlóð á Seltjarnarnesi þar sem eitt og hálft ár er eftir af lóðaleigu olíufélagsins. Fréttastofa leitaði upplýsinga hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu sem sögðust ekki myndu semja við olíufélögin um uppbyggingu á bensínstöðvarlóðum með sama hætti og gert var í Reykjavík sumarið 2021. Eftir umfjöllun Kastjóss um bensínstöðvarlóðirnar vorið 2024 var málið tekið fyrir í borgarráði. Þar var ákveðið að vísa því til Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar sem skilaði svo niðurstöðum sínum í október. Þar komu fram úrbótatillögur í 12 liðum um veigamikil atriði eins og hvort samningar borgarinnar stæðust reglur um opinber útboð og hvort um ríkisaðstoð til handa olíufélögunum væri að ræða. Þar var meðal annars mælst til þess að borgin réðist í lagalega greiningu á því hvort samningar borgarinnar við olíufélögin samræmdust reglum um samkeppni og ríkisaðstoð. Samkvæmt EES-reglugerð skal ráðstafa opinberum eignum til þess sem gerir besta tilboð í opnu og gagnsæju uppboðsferli en það var ekki gert í tilfelli olíufélaganna. Í úrbótatillögum Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar var einnig bent á að framkvæma eigi mat á því hvaða verðmæti eru látin í té þegar samið er við lóðarhafa um aukna uppbyggingu á lóð og setja reglur um útreikninga á söluverði fyrir byggingarrétt til að stuðla að gagnsæi í gjaldtöku Reykjavíkurborgar. Heitar umræður voru í borgarstjórn eftir að Innri endurskoðun skilaði sinni úttekt og samþykkt var að vísa málinu til borgarlögmanns. Þar situr það enn. Milljarðaverðmæti hafa hins vegar skapast á reitunum sem olíufélög, fasteignaþróunarfélög og verktakar hafa hagnast gríðarlega á. Virði lóðar, sem áður var bensínstöðvarlóð, jókst um hálfan milljarð á 20 mánuðum án þess að nokkrar framkvæmdir hæfust á reitnum. Reykjavíkurborg afhenti olíufélögunum 12 bensínstöðvarlóðir með byggingarrétti án sérstaks endurgjalds sumarið 2021.

Go to News Site