Collector
Snuðrulaust hefur gengið að koma farþegum Hondiusar heim | Collector
Snuðrulaust hefur gengið að koma farþegum Hondiusar heim
Fréttastofa RÚV

Snuðrulaust hefur gengið að koma farþegum Hondiusar heim

Vel gekk að flytja farþega á hollenska skemmtiferðaskipinu Hondiusi til síns heima í dag, að sögn faraldursfræðings hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni, WHO. Allir eru ánægðir með hve allt hefur farið snuðrulaust fram en sérstaklega farþegarnir og áhöfnin. Ekkert komið upp á við flutningana Boris Pavlin, faraldursfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, er á Tenerife að fylgjast með flutningum farþeganna. Fréttastofa náði tali af honum þegar hann var niðri á höfn í Granadilla de Abona á suðausturhluta eyjunnar, þar sem Hondius liggur rétt undan ströndu. Flutningarnir hófust um klukkan sjö í morgun. „Þeir hafa gengið alveg snuðrulaust. Spænsk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið mjög nákvæmlega á hverju atriði við brottflutning farþega og áhafnar. Þeir skipuðu í litla báta samkvæmt þjóðerni fáeinum í einu og komu með að bryggju.“ Aðspurður segir Pavlin ekkert hafa komið upp á. „Þetta gekk ótrúlega vel, ekkert komið upp á. Og ég held að allir hér séu ánægðir með hve allt hefur farið snurðulaust fram, en einkum farþegarnir og áhöfnin sem hafa þolað ýmislegt undanfarið.“ Fyrstu farþegarnir á skemmtiferðaskipinu Hondiusi, sem er komið til Tenerife, voru fluttir til síns heima í dag. Mikill viðbúnaður var á eyjunni en flutningarnir gengu snuðrulaust fyrir sig, að sögn faraldursfræðings hjá WHO. Hantaveirur eru vel þekktar og sjaldgæft er að þær smitist milli manna. Pavlin segir ekkert óvænt hafa komið upp í þessu hópsmiti. „Það óvenjulega er að þetta er lystiferðaskip. Það hefur aldrei komið upp hantaveirusmit á lystiferðaskipi. Við erum vanir að fást við smit um borð í skemmtiferðaskipum og sumir muna sjálfsagt eftir uppákomum í kringum covid. En þetta er ekkert líkt covid.“ Íbúum stafar ekki hætta af flutningunum Pavlin segir íbúa á Tenerife ekki þurfa að hafa áhyggjur af flutningunum. „Það er mikilvægt að þeir viti að þeim stafi ekki hætta af þeim. Þetta er ógnvekjandi veira fyrir þá sem hafa ekki heyrt um hana áður eða þekkja hana ekki. Það er skiljanlegt. Hins vegar hefur aldrei verið sýnt fram á að einkennalausir dreifi veirunni. Allir um borð eru einkennalausir.“ Þessar miklu varúðarráðstafanir séu til staðar svo að öllum sé sinnt eins vel og hægt er en líka til að draga úr ótta íbúa eyjunnar. Pavlin ítrekar að enginn af skipinu hafi komist í snertingu við íbúa á Tenerife. Fólk smitast yfirleitt eftir nánd við sýkt nagdýr eða þvag, saur eða munnvatn þeirra. Hann bendir á að þessi nagdýr sé ekki að finna á eyjunni. „Þetta eru sérstök nagdýr sem lifa í Suður-Ameríku í Andes-fjallgarðinum og þau finnast ekki annars staðar í heiminum. Skiparottur til að mynda bera ekki með sér Andesveiru.“ Pavlin segir að búið sé að grandskoða skipið og þar séu engin nagdýr. „Þetta er leiðangursskip sem sérhæfir sig í að fara á vistfræðilega viðkvæm svæði og ég hef meira að segja farið í ferð á skipinu. Áhöfnin er með mjög stíft verklag til að tryggja að engin nagdýr komist um borð og að engir sýklar séu fluttir frá einu svæði til annars, þar sem viðkvæm svæði eru heimsótt.“

Go to News Site