Fréttastofa RÚV
Þyngdarstjórnunarlyf eins og Wegovy og Ozempic eru seld á svörtum markaði hér á landi en ógerningur er að segja til um uppruna þeirra. Efni sem er sagt öflugt ósamþykkt tilraunalyf er selt víða á samfélagsmiðlum. Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir það grafalvarlegt að fólk sprauti sig með óþekktum efnum. Fleiri vilja þyngdarstjórnunarlyf en fá þau uppáskrifuð Sífellt fleiri fá uppáskrifuð þyngdarstjórnunarlyf hér á landi en um fimm prósent þjóðarinnar, tæplega 17 þúsund manns eru á slíkum lyfjum, flestir á Wegovy. En fleiri vilja lyfin en fá þau uppáskrifuð og þar sem eftirspurn er til staðar skapast framboð. Á forritum eins og Telegram og Signal eru lyf eins og Wegovy og Ozempic auglýst með ávanabindandi lyfjum og ólöglegum fíkniefnum. Oft er sérstaklega tekið fram að lyfin séu úr apóteki, ekki fölsuð. Ekki hægt að vita hvaðan efnin koma eða hvernig farið er með þau Rúna, forstjóri Lyfjastofnunar, segir enga leið að vita hvort lyfin séu séu lögleg lyf eða raunverulega það lyf sem er á markaði hér á landi. Fleira þurfi þó að varast. „Sérstaklega eins og með lyf eins og Wegovy - það má t.d. ekki frjósa og þarf að geymast í kæli,“ segir hún. Þyngdarstjórnunarlyf eru seld á svörtum markaði hér á landi en útilokað er að segja til um uppruna þeirra. Efni sem er sagt öflugt ósamþykkt tilraunalyf er selt víða á samfélagsmiðlum. Fölsuð eða skemmd lyf geta valdið alvarlegum veikindum eða dauða. „Það gæti líka verið búið að föndra eitthvað ýmislegt lyfið og það þarf bara að vara fólk við þessu. Eitthvað sem þú sprautar inn í líkamann er bara mjög hættulegt ef þú veist ekki hvaðan það kemur og ef því hefur ekki verið ávísað á þig,“ segir Rúna. Mikilvægt sé að tilkynna það til lögreglu þegar lyf eru auglýst til sölu á slíkum forritum eða á netinu. Efni fölsuð og seld á Norðurlöndunum Á Norðurlöndunum hefur fjöldi frétta borist af ólöglegri sölu þyngdarstjórnunarlyfja - bæði þar sem ófölsuð lyf eru seld en einnig framleiðslu og sölu falsaðra efna. Til að mynda stöðvaði lögregla í Svíþjóð starfsemi þar sem óþekktum efnum frá Kína var pakkað í kjöllurum, og látin líta út fyrir að vera upprunaleg og framleidd af lyfjafyrirtækjum. „Falsanir eru orðnar mjög góðar það er mjög auðvelt að falsa svona pakkningar og eitthvað slíkt. Þú þarft eiginlega að vera dálítið mikill sérfræðingur til þess að sjá að um fölsun sé að ræða,“ segir Rúna. Selja og óska eftir nýju ósamþykktu tilraunalyfi á samfélagsmiðlum Nýtt efni hefur tröllriðið öllu á samfélagsmiðlum. Það sem sagt er vera tilraunalyfið Retatrutide, og kallað Reta, er auðfáanlegt á netinu, jafnvel á opnum Facebook-síðum. Það veldur hröðu þyngdartapi en getur einnig valdið svæsnum aukaverkunum. Nær útilokað að „Reta“ sé raunverulegt Retatrutide Raunverulega lyfið hefur ekki verið samþykkt á markað og Rúna segir hverfandi líkur á að verið sé að selja það, eins og er jafnvel fullyrt. „Þetta er nýtt þyngdarstjórnunarlyf sem er í klínískum rannsóknum og það er nánast útilokað að það hafi farið út úr hinni löglegu keðju svo ég veit eiginlega bara ekkert hvað hvað er verið að selja,“ segir Rúna. Afleiðingarnar hugsanlega lífshættulegar Afleiðingarnar af því að sprauta sig með óþekktu efni geta verið grafalvarlegar. „Í bestu tilfellunum er þetta kannski bara vatn en í þeim verstu er þetta til dæmis eins og insúlín, og fólk hefur dáið vegna þess, það gerðist til dæmis í Bretlandi,“ segir Rúna. Kona lést þá eftir að hafa keypt það sem hún hélt að væri viðurkennt þyngdarstjórnunarlyf frá lyfjaframleiðanda á snyrtistofu. Fólk sem myndi aldrei kaupa neitt ólöglegt sækist í þessi efni Upplýsingaóreiða og stíf markaðssetning á samfélagsmiðlum hefur orðið til þess að hið ólíklegasta fólk sækist í slík efni. Rúna telur að þau hafi að einhverju leyti verið normalíseruð. „Og þetta er fólk sem myndi bara kannski aldrei kaupa eitthvað ólöglegt á netinu,“ En er tilbúið að sprauta sig með einhverju sem það veit ekki hvað er? „Já, og það er náttúrulega mjög alvarlegt,“ segir Rúna.
Go to News Site