Fréttastofa RÚV
Í dag eru sex dagar til sveitarstjórnarkosninga. Rætt var við íbúa Akureyrarbæjar í kvöldfréttum um þau málefni sem brenna á þeim fyrir kosningarnar. Akureyringum hefur fjölgað um þúsund á kjörtímabilinu og margir sem hafa orðið á vegi fréttastofunnar vilja sjá bæinn halda áfram að stækka og ný hverfi rísa hraðar. Það þurfi að spýta í lófana í byggingu íbúðarhúsa og íþróttamannvirkja og fá meira líf í miðbæinn. Akureyringum finnst einnig að betur megi fara í málefnum sem snerta þá dag frá degi, nærumhverfinu, hvernig þeir komast milli staða og þjónustu við börn og eldri borgara.
Go to News Site