Collector
Barcelona Spánarmeistari | Collector
Barcelona Spánarmeistari
Fréttastofa RÚV

Barcelona Spánarmeistari

Barcelona varð í kvöld Spánarmeistari karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á Real Madrid í úrvalsdeildinni. Marcus Rashford og Ferran Torres skoruðu mörkin snemma í leiknum. Þetta er annar meistaratitill Barcelona í röð og komu báðir titlarnir undir stjórn þýska þjálfarans Hansi Flick sem upplifir blendnar tilfinningar því faðir hans lést um helgina. Leikmenn Barcelona fagna titlinum í kvöld.AP / Joan Monfort Þó enn séu þrjár umferðir eftir af spænsku úrvalsdeildinni getur ekkert lið náð Barcelona að stigum. Real Madrid er í öðru sæti, 14 stigum á eftir Barcelona sem dugði jafntefli í kvöld til að tryggja titilinn. Þjálfarinn Hansi Flick fékk flugferð hjá leikmönnum sínum.AP / Joan Monfort

Go to News Site