Collector
Segir svör Írana algerlega óásættanleg | Collector
Segir svör Írana algerlega óásættanleg
Fréttastofa RÚV

Segir svör Írana algerlega óásættanleg

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að svör Írana við friðartillögu Bandaríkjastjórnar séu algerlega óásættanleg. Trump greindi frá þessu í færslu á Truth Social í kvöld án þess að útlista nánar hvað felst í svörum Írana. Íranar svöruðu friðartillögum Bandaríkjastjórnar fyrr í dag. Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, sagði í færslu á X að stjórnvöld myndu ekki láta undan óvinunum og ef samtal eða samningaviðræður eru í myndinni þá þýðir það ekki uppgjöf eða undanhald. Samkvæmt IRIB, ríkisfjölmiðli Írans, var svörum Írana við friðartillögunni miðlað af pakistönskum samningamönnum og sneru að því að ljúka stríðinu á öllum vígstöðvum, sér í lagi í Líbanon, og tryggja öryggi skipasiglinga. Auðgað úran Írana virðist áfram vera ásteytingarsteinn milli Írana og Bandaríkjanna og Ísraela. Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, sagði í viðtali við fréttaskýringaþáttinn 60 minutes að stríðinu væri ekki lokið því það væri enn auðgað úran í Íran sem þyrfti að fjarlægja þaðan, og auðgunarsvæði sem þyrfti að eyðileggja. Netanyahu sagði að Trump væri sama sinnis. Íranar lögðu til að auðgað úran yrði flutt til þriðja lands Samkvæmt ónafngreindum heimildarmönnum The Wall Street Journal settu Íranar fram kröfur við friðartillöguna en samþykktu að hluti þess auðgaða úrans sem þeir búa yfir yrði þynnt út og afgangurinn fluttur til þriðja lands. Íranar lögðu til að úranið yrði trygging fyrir því að friðarsamkomulag myndi nást, því ef friðarsamkomulagið næst ekki eða Bandaríkjamenn ganga frá því síðar meir, þá fengju þeir úranið aftur til baka. Bandaríkjaforseti hefur ekki upplýst um slíkar tillögur Írana. Bretar og Frakkar boða varnarmálaráðherra á fund vegna Hormússunds Bretar og Frakkar hafa undanfarið unnið að undirbúningi alþjóðlegs varnarsamstarfs til að tryggja öryggi skipasiglinga um Hormússund þegar friðarsamkomulag hefur náðst í Mið-Austurlöndum. Ríkin hafa bæði sent herskip af stað til að vera til taks þegar þar að kemur. Þá hafa breski varnarmálaráðherrann John Healey og Catherine Vautrin varnarmálaráðherra Frakka boðað varnarmálaráðherra og hernaðarsérfræðinga frá 40 löndum til fundar í Bretlandi á þriðjudaginn til að ræða áætlanir um Hormússund. Aðstoðarutanríkisráðherra Írans, Kazem Gharibabadi, skrifaði í færslu á X fyrr í dag að aðeins Íranar gætu tryggt öryggi á Hormússundi og þeir myndu ekki leyfa öðrum þjóðum að blanda sér í þau mál.

Go to News Site