Collector
Nýliðun í kanadíska hernum ekki meiri í 30 ár | Collector
Nýliðun í kanadíska hernum ekki meiri í 30 ár
Fréttastofa RÚV

Nýliðun í kanadíska hernum ekki meiri í 30 ár

Kanadíski herinn hefur stækkað gríðarlega síðustu tvö ár. Nýliðun í her landsins í ár er sú mesta í 30 ár þegar um 7.000 nýliðar gengu í herinn. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC . Kanada hefur í áratugi verið talið dragbítur á heimsvísu í fjármögnun til varnarmála og fyrir aðeins tveimur árum var nýliðun í hernum svo bágborin að fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins varaði við því að herinn væri fastur í niðursveiflu sem færi sífellt versnandi. „51. fylkið“ Þessa aukningu á mannafla hersins síðustu tvö ár má líklega skýra með skuldbindingu Kanada að verja milljörðum til varnarmála. Árum saman hefur Kanada ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Atlantshafsbandalaginu en nú hefur landslag alþjóðamála breyst. Þjóðernishyggja í landinu hefur einnig fengið byr undir báða vængi, sérstaklega vegna ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta þar sem hann vísaði til Kanada sem „51. fylkisins“. Kanadamenn litu margir hverjir á ummæli forsetans sem ógn við fullveldi landsins. Innrás Rússa hrint af stað nýliðun Charlotte Duval-Lantoine, sem rannsakar hernaðarmenningu Kanada við Canadian Global Affairs Institute, segir að „Trump-áhrif“ gætu legið að baki nýlegri aukningu skráninga í kanadíska herinn. Umsóknum í herinn hefði þó þegar byrjað að fjölga árið 2022, um það leyti sem Rússar réðust inn í Úkraínu. „Þegar fólk sér að heimurinn er ekki jafn öruggur, að land þess gæti verið í hættu... þá sjáum við gjarnan að fólk gengur í herinn,“ er haft eftir Duval-Lantoine í frétt BBC. Alþjóðleg átök og Bandaríkjaforseti eru þó ekki einu þættirnir sem knýja aukninguna áfram. Hátt atvinnuleysi meðal ungs fólks í Kanada, sem var tæplega 14% í mars á þessu ári, ásamt loforði um atvinnuöryggi og hærri launum fyrir hermenn, spilar einnig stóran þátt að sögn Duval-Lantoine. Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, tilkynnti í apríl að laun hermanna yrðu hækkuð um 8 til 20 prósent. Kanada er ekki eina landið sem hefur reynt að gera herinn að ákjósanlegri kosti en Frakklandsforseti kynnti í fyrra áætlun til að fá fleira ungt fólk til að skrá sig í herinn í ljósi breytts landslags í alþjóðamálum.

Go to News Site