Collector
Gróðursetja í minningu Hjalta | Collector
Gróðursetja í minningu Hjalta
Fréttastofa RÚV

Gróðursetja í minningu Hjalta

Hjalti Snær Árnason hefði orðið 24 ára 9. maí en hann svipti sig lífi í fyrra. Hjalti var einhverfur og með geðrænan vanda. Við 18 ára aldur féll hann milli kerfa og fékk ekki þá aðstoð sem hann þurfti. Foreldrar hans og aðrir aðstandendur vilja vekja athygli á málefnum ungmenna með geðrænan vanda og því úrræðaleysi sem hefur einkennt málaflokkinn. „Það vantar svo mikið, eins og allir vita, úrræði fyrir ungmenni. Þegar við fréttum að Hjalti okkar væri farinn í sjóinn ákváðum við bara strax: nú gerum við eitthvað úr þessu og látum þetta ekki fara undir teppið,“ segir Gerður Ósk Hjaltadóttir, móðir Hjalta. „Hann er með okkur, algjörlega. Hann plantar þessu geggjaða veðri, það er búið að vera snjór alla vikuna. Ég veit það alveg, hann er búinn að vera með okkur frá fyrsta degi,“ segir hún. Ætla ekki að bíða eftir að missa annan ástvin Um helgina var vígður Hjaltalundur, í minningu Hjalta Snæs, að Hömrum á Akureyri. Fólk gat keypt tré og gróðursett í minningu hans og allur ágóði af verkefninu rennur til Hjaltastaða, sem forsvarsmenn vonast eftir að verði það úrræði sem svo nauðsynlega vanti á Norðurlandi. Skortur er á úrræðum fyrir ungmenni eldri en 18 ára sem glíma við fjölþættan vanda. Forsvarsmenn Hjaltastaða á Akureyri vonast eftir vitundarvakningu um málefnið. „Við hjá Hjaltastöðum, við erum að vera ákallið fyrir einstaklinga sem eru að falla milli kerfa. Við erum þegar búin að missa einstakling úr okkar fjölskyldu og við ætlum ekki að bíða eftir næsta. Þá er hugmyndin að Hjaltastöðum, svona grasrót að fá bæinn og ríkið að taka höndum saman og vinna þvert á kerfi,“ segir Guðrún Huld Gunnarsdóttir, formaður Hjaltastaða. Fjölmargir voru við opnun Hjaltalundar og gróðursettu tré og plöntur. Aðstandendur eru vongóðir um að verkefnið gangi vel og verði að gagni. „Það er fullt af ungmennum sem eru ekki að gera neitt og eru bara að veslast upp þannig séð og vantar hjálp og fá ekki hjálpina. Þó það verði ekki nema ein manneskja sem mun nýta sér þetta, þá erum við glöð,“ segir Gerður Ósk.

Go to News Site