Fréttastofa RÚV
Sauðburður stendur nú yfir af fullum krafti í Grindavík en þar eru í dag fjórir frístundabændur með fé. Lömbin þykja óvenju skrautleg enda alls konar á litinn. Í fjárhúsinu við Vík eru þau Sigrún Harpa Harðardóttir og Anton Helgi Hermannsson með 22 kindur, sem eru nánast allar bornar, en sauðburður hófst óvenjulega snemma hjá þeim. „Hann byrjaði 26. apríl og það er búið að vera brjálað að gera síðan. Það eru flest allar tvílembur, ætli það séu ekki svona 44 lömb, sem við eigum von á,” segir Sigrún Harpa. Er þetta ekki dásamlegur tími? „Þetta er bara besti tími ársins, mér finnst það. Það er líka gott að vera heima í Grindavík”, segir Sigrún Harpa. En að búa í Grindavík núna, hvernig er það? „Það er bara geggjað að vera hérna. Sveitalyktin er best við Grindavík en ég var lítill sveitakarl en komst inn í þetta sveitalíf hérna, það er mjög gott”, segir Anton Helgi. Og yngsta barn þeirra Sigrúnar og Antons, Arinbjörn Diðrik, var ekki lengi að finna nöfn á þessi þrjú lömb. „Mollý, Jón Jónsson og Aron Can”, segir Arinbjörn. Og Írena Vigdís Guðmundsdóttir, sem fær stundum að koma í heimsókn í fjárhúsið er alltaf svo ánægð að sjá lömbin. „Ég elska lömb og ég hef alltaf haldið á lömbum þannig að þau eru sæt. Ég elska líka Grindavík”, segir Írena kát og ánægð eins og alltaf. Sauðburður stendur yfir af fullum krafti í Grindavík. Í fjárhúsinu við Vík eru þau Sigrún Harpa Harðardóttir og Anton Helgi Hermannsson með 22 kindur og sauðburður hófst óvenjulega snemma.
Go to News Site