Fréttastofa RÚV
Einn þeirra 17 bandarísku ríkisborgara sem voru fluttir frá skemmtiferðaskipinu Hondius á Tenerife í gær hefur greinst með hantaveiru, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna. Annar bandarískur ríkisborgari er með væg einkenni smits. Hópurinn verður fluttur í sérstaka móttökustöð í Nebraska í Bandaríkjunum þar sem hver og einn fer í gegnum læknisskoðun og fær viðeigandi meðferð og aðstoð. Einn franskur ríkisborgari hefur greinst með jákvætt hantaveirusmit. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að allir fimm frönsku ríkisborgararnir sem voru um borð í Hondiusi hafi verið settir í sóttkví í 72 tíma við komu til Parísar. Að henni lokinni mun fólkið gangast undir læknisskoðun áður en það fær að fara heim til sín í 45 daga heimasóttkví. Sex ástralskir ríkisborgarar fara með flugi til Ástralíu í dag og flogið verður með 18 hollenska ríkisborgara til Hollands.
Go to News Site