Fréttastofa RÚV
Íranar kröfðust þess að endir yrði bundinn á stríðsátök alls staðar í Miðausturlöndum og að Bandaríkjamenn losuðu um eignir Írana sem hafa verið frystar í vestrænum bönkum. Svona lýsti Esmaeil Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, síðustu tillögum Íransstjórnar um að koma á friði í stríði Írans og Bandaríkjanna. Jafnframt kröfðust þeir þess að hafnbanni Bandaríkjanna á Íran yrði aflétt. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að tillögur Íransstjórnar væru algjörlega óásættanlegar. Þetta skrifaði hann í hástöfum á samfélagsmiðil sinn, Truth Social. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að Bandaríkjastjórn héldi áfram að gera óraunhæfar kröfur að skilyrði fyrir því að koma á friði „Við berjumst hvenær sem við neyðumst til að berjast og við semjum hvenær sem gefst tækifæri til þess.“ Baghaei sagði að Trump hefði grafið undan öryggi og stöðugleika í Miðausturlöndum þegar hann hafnaði tillögum Íransstjórnar um að binda enda á stríðið.
Go to News Site