Collector
Lifir drauminn sem hann þorði ekki að dreyma | Collector
Lifir drauminn sem hann þorði ekki að dreyma
Fréttastofa RÚV

Lifir drauminn sem hann þorði ekki að dreyma

Pétur hefur alla tíð verið skapandi, teiknaði mikið, æfði dans um árabil og tók þátt í alls kyns skapandi verkefnum á námsárum í Versló. Hann lærði grafíska hönnun við LHÍ þar sem áhugi hans á lágmyndum varð að lokaverkefni. Skiptinám í Hollandi hafði mikil áhrif á hann og hans stefnu, en í dag hefur hann haldið nokkrar einkasýningar þar sem öll verk hafa selst og komið sér upp vinnustofu í Hafnarfirði innan um allt annars konar starfsemi þar í bæ. Verk Péturs eru mörg hver nokkurs konar lágmyndir í ramma, unnar í tré, steypu og plast t.d. og hann nýtir nútímatækni s.s. laserskera og fleira. Hlusta má á viðtal Huldu Geirsdóttur við Pétur í spilaranum hér að ofan þar sem hann fer yfir lífið, listina og lágmyndirnar, áhrifavalda og lífssýn.

Go to News Site