Collector
Fyrrverandi rektor Bifrastar meðal umsækjenda um FB | Collector
Fyrrverandi rektor Bifrastar meðal umsækjenda um FB
Fréttastofa RÚV

Fyrrverandi rektor Bifrastar meðal umsækjenda um FB

Sjö umsóknir bárust um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti áður en umsagnarfrestur rann út í síðasta mánuði. Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir er að láta af embætti eftir sautján ára starf. Hún er aðeins þriðji skólameistarinn í hálfrar aldar sögu skólans og verður arftaki hennar því fjórði einstaklingurinn til að gegna því embætti. Meðal umsækjenda eru Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor við Háskólann á Bifröst. Auk þeirra sækja um þrír kennarar, einn sérfræðingur og leiðtogi farsældar barna.

Go to News Site