Collector
Bréf í Alvotech hækka eftir lok úttektar | Collector
Bréf í Alvotech hækka eftir lok úttektar
Fréttastofa RÚV

Bréf í Alvotech hækka eftir lok úttektar

Hlutabréfaverð í Alvotech hækkaði um níu prósent í morgun. Þetta gerist eftir að Lyfja- og matvælaeftirlit Bandaríkjanna lauk úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins í Reykjavík. Alvotech greindi í dag frá lokum úttektarinnar og áformum um að senda inn nýjar umsóknir um markaðsleyfi vegna hliðstæðulyfja fyrir lok annars ársfjórðungs. Í tilkynningu Alvotech sagði að hægt yrði að bregðast skjótt við athugasemdum þeirra sem unnu úttektina án veigamikilla breytinga eða viðbragða. Höfuðstöðvar Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík.Alvotech / Stefán Drengsson

Go to News Site