Collector
„Hún sér þetta skot í hvert skipti sem hún lokar augunum“ | Collector
„Hún sér þetta skot í hvert skipti sem hún lokar augunum“
Fréttastofa RÚV

„Hún sér þetta skot í hvert skipti sem hún lokar augunum“

Úrslitaeinvígi Njarðvíkinga og Hauka um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta heldur áfram í kvöld. Njarðvíkingar eru í hefndarhug eftir að Haukar unnu einvígið síðasta vor. Þá þurfti til framlengdan oddaleik. Njarðvík leiðir einvígið 1-0 og getur komið sér í kjörstöðu með sigri á heimavelli í kvöld. Körfuboltasérfræðingurinn Ólöf Helga Pálsdóttir segir Njarðvíkinga hafa sýnt að Haukar séu ekki ósigrandi í fyrsta leik. Þá segir hún grænklædda Njarðvíkinga í miklum hefndarhug, þá sérstaklega stjarna þeirra Brittany Dinkins sem klúðraði sniðskoti undir lok leiks í oddaleiknum. „Við ætlum ekki að láta þetta gerast aftur“ Ólöf Helga telur að tapið fyrir ári síðan sé afar drífandi fyrir Njarðvíkinga. En hversu miklum hefndarhug eru þær í? „Fyrir mitt leyti, hvernig ég myndi hugsa bæði sem leikmaður og þjálfari, þá er tapið í fyrra mjög góð hvatning. Þetta er mjög drífandi til að koma sér áfram. „Við ætlum ekki að láta þetta gerast aftur.“ Þær töpuðu á klikkuðu sniðskoti frá þeirra besta leikmanni sem er áfram, Brittany Dinkins. Ég er viss um að hún sér þetta skot í hvert skipti sem hún lokar augunum þegar hún fer að sofa. Ég held að þetta sé mjög drífandi fyrir þær. Ég vona svo sannarlega að Haukar hafi einhver svör í kvöld og geri þetta aftur að seríu. Sigur hjá þeim myndi opna þetta upp á gátt.“ Haukum finnst óþægilegt að spila við sjálfa sig Njarðvík vann 92-80 sigur í fyrsta leiknum. Ólöf telur að Haukar hafi verið besta liðið í vetur en Njarðvíkingar hafi sýnt að þær séu ekki ósigrandi. Þá hafi Njarðvík spilað afar hraðan leik, líkt og Haukar. Það hafi þó tekið Hauka smá tíma að venjast því. „Það sem við lærðum í fyrsta leiknum er að Haukar eru ekkert endilega ósigrandi, eins og flestir voru búnir að spá. Haukar eru hægt og bítandi búnir að verða besta liðið. Þær urðu deildarmeistarar þrátt fyrir erfiða byrjun.“ „Njarðvík hefur ekki farið eins sannfærandi í gegnum úrslitakeppnina. Þær hafa verið rokkandi í vetur en við lærðum að við eigum inni hörkuseríu fram undan.“ „Ég trúi ekki öðru en að Haukar komi með einhver svör í kvöld. Þetta eru lík lið. Við lærðum líka í fyrsta leiknum að Haukum finnst óþægilegt að spila við sjálfa sig. Njarðvík spilar hraðan bolta sem Haukar hafa gert en öðrum liðum þykir óþægilegt. Það tók Haukakonur svolítinn tíma að venjast því að spila hratt gegn hröðu liði.“ Við fengum framlengdan oddaleik í fyrra. Ég hef trú á því að við fáum jafn mikla spennu í ár.“ Geta Haukarnir sótt sigur í Ice Mar-höllina? Njarðvík sótti útisigur í Ólafssal í fyrsta leiknum en nú færir serían sig yfir í Ice Mar höllina í Njarðvík. Geta Haukar unnið þar í kvöld? Ólöf segir allt galopið en að það muni um Paulinu Hersler og stuðningssveit Njarðvíkinga. „Haukar geta klárlega sótt sigur. Þær skoruðu 115 stig á Njarðvík í síðasta sigri þeirra í deildinni þarna. En Njarðvík er með frábæra stuðningsmenn sem mér fannst jafnvel betri í Ólafssal síðast. Þannig það verður erfitt að sækja sigur núna. Paulina Hersler var líka ekki með í þeim leik. Hún var drjúg í fyrsta leik úrslitanna og var framlagshæst sinna kvenna,“ bætti Ólöf við. Hvernig mun leikur kvöldsins spilast? Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:45. Ólöf segir það lykilatriði að Haukar finni lausn á Hersler vandamálinu. Þá spáir hún í spilin. „Haukar hljóta að koma með lausnir á því hvernig þær stoppa Paulinu Hersler . Hún átti mjög auðvelt með teiginn og það var út af skiptivörn Hauka. Haukar voru að skipta á hindrunum sem gerði það að verkum að hún var ein í teignum. Hún var með bakverði á sér sem eru töluvert minni. Ég er viss um að Emil Barja eigi eftir að koma með einhver svör þar. Ef ég á að spá eftir minni sannfæringu þá held ég að Njarðvík taki þetta í kvöld en síðan taki Haukar næstu tvo og við fáum oddaleik í Ólafssal.“

Go to News Site