Collector
EBU áminnir Eurovision-flytjanda Ísraels | Collector
EBU áminnir Eurovision-flytjanda Ísraels
Fréttastofa RÚV

EBU áminnir Eurovision-flytjanda Ísraels

Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, hefur áminnt Noam Bettan, keppanda Ísrael í Eurovision, fyrir auglýsingar þar sem hann hvetur áhorfendur til þess að veita Ísrael 10 atkvæði. Í myndböndum sem dreift hefur verið á mörgum mismunandi tungumálum á netinu hvetur Bettan áhorfendur til þess að kjósa framlag Ísraels tíu sinnum sem er hámarksfjöldi atkvæða en lagið verður það tíunda á svið í fyrri undankeppni Eurovision á morgun. Martin Green, framkvæmdastjóri Eurovision, sagði í tilkynningu á laugardag að auglýsingarnar væru ekki í samræmi við reglur eða gildi keppninnar og fór EBU fram á að Bettan tæki myndböndin úr dreifingu. Breyttar reglur í ár Ísrael var áður gagnrýnt fyrir auglýsingar í tengslum við keppnina 2024 og 2025, þá fyrir auglýsingaherferðir á Youtube þar sem áhorfendur voru hvattir til að kjósa Ísrael. Ísraelsk stjórnvöld borguðu fyrir auglýsingarnar og þær voru birtar á um hundrað tungumálum. Reglum Eurovision hefur verið breytt og ríkisstjórnir mega ekki lengur greiða fyrir auglýsingar fyrir framlög sín. Þá var hámarksfjölda atkvæða breytt úr 20 í 10. Talsmenn KAN segja að engar reglur hafi verið brotnar. Auglýsingarnar séu á vegum listamannanna sjálfra og í samræmi við auglýsingar annarra keppenda. Þátttaka Ísraels í Eurovision í ár hefur verið harðlega gagnrýnd af öðrum þjóðum og Ísland, Holland, Írland, Slóvenía og Spánn drógu sig úr keppni vegna hennar.

Go to News Site