Collector
Samferða Róshildi | Collector
Samferða Róshildi
Fréttastofa RÚV

Samferða Róshildi

Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving hefur unnið að tónlist undir nafninu Róshildur síðan 2021. Tónlistin er einlæg, rafdrifin og einkennist af hráum og persónulegum textum. Þann 5. maí gaf hún út fyrstu plötuna í fullri lengd, Samferða. Á plötunni fjallar hún um leiðirnar sem við deilum með fólkinu í kring um okkur, þeim sem við erum samferða í gegnum lífið. Titillag plötunnar er unnið með Iðunni Einars en þær voru með reglu um það að hvor þeirra mætti aðeins vinna í laginu í klukkustund áður en það yrði að senda það til baka á hina. „Þetta small eiginlega þegar við Iðunn kláruðum lagið Samferða þá sá ég bara svona skýran þráð og þegar ég fann þennan titil á lagi þá var ég bara já, þetta er auðvitað það sem platan heitir líka,“ segir hún. Samstarfið milli þeirra kom til þegar Iðunn heyrði í Róshildi því hún var orðin þreytt á því að vinna alltaf ein. Að Róshildar mati voru þær þó báðar smá smeykar við að vinna með öðrum. „Ég upplifi það mjög sterkt sem kona að ef ég vinn með til dæmis karli þá halda alltaf allir að hann hafi pródúserað allt,“ segir Róshildur en hún heldur að það spili inn í að þeim líði eins og þær þurfi að vernda sinn eigin höfundarrétt. Iðunn býr í Kaupmannahöfn og það gat verið snúið en þegar Róshildur var þar fyrir tilviljun ákváðu þær að hittast og klára lagið. Platan var í raun tilbúin þegar að því kom en Róshildur stakk upp á því að reyna að koma laginu fyrir á plötunni þrátt fyrir það. „Iðunn var til í það þannig að við skelltum þessu inn á á síðustu stundu.“ Á plötunni má einnig heyra í gítar sem er glænýtt fyrir Róshildi. Hún fór að spila á gítar eftir að hún vann með tónlistarkonunni Jófríði og kom fram með henni á Iceland Airwaves. Róshildur smíðaði einnig langspil sem hún er mjög spennt fyrir og stefnir á að nota meira á tónleikum á næstunni. Samferða by Róshildur „Það er aðeins of mikið af öðrum boltum í loftinu líka þannig ég er að reyna að njóta líka plötunnar,“ viðurkennir Róshildur. Helgina áður en platan kom út var hún með útgáfuinnsetningu í galleríinu Herma á Hverfisgötu sem leyfði henni að fagna plötunni. Í Hermu gat fólk hlustað á plötuna áður en hún kom út og séð alls kyns muni sem tengdust gerð hennar, eins og hljóðfæri og dagbækur. „Það er svo allt öðruvísi þegar maður er kannski með útgáfutónleika, þá er maður svo mikið on the spot að stressa sig og getur einhvern veginn ekki tekið við hrósunum,“ segir hún. Róshildur fékk þó aðeins að vita að hún fengi rýmið nokkrum vikum fyrir sýninguna. „Þetta var alveg hrikalegt,“ segir hún en hún var að spila á tónleikum í Bandaríkjunum þegar hún fékk fréttirnar. „Þannig þetta var algjört svona túrbó, bara all nighter- rugl að búa til þessa sýningu.“ Mér finnst svo hrikaleg tilhugsun að vera á einhverjum bar og ýta á play og það eru allir að spjalla og fá sér bjór. Lengi hafði Róshildur velt því fyrir sér að halda hlustunarpartí fyrir plötuna en hún átti erfitt með tilhugsunina og um að fólk myndi ekki gefa tónlistinni næga athygli. Sýningin var því fullkominn vettvangur til þess að leyfa fólki að hlusta eða spjalla eftir þörfum þar sem það var hægt að setjast niður og setja á sig heyrnartól til þess að hlusta á plötuna í friði. „Það er alveg smá scary ,“ segir Róshildur, að hleypa fólki svona nálægt ferlinu. Á opnuninni lenti hún í því að vinkona hennar fór að fletta í bókunum sem voru til sýnis og var hún þá fljót að stoppa hana og límdi bækurnar niður á þeirri opnu sem átti að vera til sýnis svo það kæmi ekki aftur fyrir. Róshildur er lærður sviðshöfundur og hefur unnið mikið með leikhús. „Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst ég ná að tvinna þetta saman,“ segir hún. Útgáfutónleikar fyrir plötuna verða haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum 16. júní. Þar getur fólk séð Róshildi spila bæði á gítar og langspil og einnig verður hægt að kaupa vínyl þar. Miða er hægt að nálgast á tix.is Fjallað var um Róshildi í Ólátagarði á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Ólátagarður á Rás 2 ræddi við Róshildi rétt áður en að fyrsta plata hennar, Samferða, kom út í byrjun maí.

Go to News Site