Collector
Skoða leka innherjaupplýsinga úr Ráðhúsinu | Collector
Skoða leka innherjaupplýsinga úr Ráðhúsinu
Fréttastofa RÚV

Skoða leka innherjaupplýsinga úr Ráðhúsinu

Alvarlegur og ólöglegur leki innherjaupplýsinga varð úr Ráðhúsinu í lok apríl að mati regluvarðar Reykjavíkurborgar. Hún hefur tilkynnt atvikið til fjármálaeftirlits Seðlabankans. Tilefnið er fréttaflutningur mbl.is um allar helstu upplýsingar úr ársreikningi Reykjavíkurborgar árið 2025 sem birtist á sama tíma og ársreikningurinn var birtur opinberlega. Ársreikningurinn og fylgigögn hans eru bundin lögmæltri trúnaðarskyldu og teljast til innherjaupplýsinga. „Ólögmæt miðlun innherjaupplýsinga til þriðja aðila utan starfsskyldna, s.s. blaðamanns, er refsiverð,“ segir í bréfi regluvarðar dagsettu 5. maí. Heimildin greindi fyrst frá málinu. Leki fjárhagsgagna séu markaðssvik Regluvörður segir að fyrir liggi að upplýsingamiðlun til Morgunblaðsins hafi verið ólögmæt „enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll.“ „Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum,“ skrifar regluvörður. Ársreikningurinn var tekinn fyrir á fundi borgarráðs 27. apríl. Brýnt var fyrir bæði borgarfulltrúum og áheyrnarfulltrúum fundarins að gögnin væru trúnaðarmál fram að opinberri birtingu. Regluvörður skrifar að aðeins hann sjálfur og þeir sem sátu fundinn hafi vitað um tímasetningu birtingar, klukkan 13.30 sama dag. Tilbúin að veita aðgang að tölvupóstum Bréf regluvarðar um upplýsingalekann var tekið fyrir á fundi borgarráðs síðasta fimmtudag. Í bókun meirihlutans segir að fulltrúar hans séu tilbúnir að gefa eftirlitsaðilum fullan aðgang að tölvupóstsamskiptum sínum í tengslum við rannsókn málsins. Atvikið hefur verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar borgarinnar og endurskoðunarnefndar og er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti. Hverjir höfðu aðgang að gögnunum? Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Róbert Marshall aðstoðarmaður hennar Þorsteinn Gunnarsson borgarritari Alexandra Briem borgarfulltrúi Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Skúli Helgason borgarfulltrúi Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Helga Þórðardóttir borgarfulltrúi Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar Heimir Snær Guðmundsson, sem hafði umsjón með fundi borgarráðs Þetta eru þau sem regluvörður Reykjavíkurborgar telur upp að hafi haft aðgang að gögnunum. Auk þeirra höfðu starfsmenn á skrifstofu borgarstjórnar, skrifstofu borgarstjóra og borgarritara aðgang að þeim. Borgarráðsfund 27. apríl sátu einnig starfsmenn fjármála- og áhættustýringasviðs auk endurskoðenda.

Go to News Site